utanríkis- og alþjóðamál.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir skýrsluna. Mig langar að spyrja hann út í málefni sem hann fór nú ekki mikið yfir í ræðu sinni en koma fyrir í skýrslu ráðherrans og lúta að umhverfismálum og þá sérstaklega málefnum hafsins. Það vakti athygli mína þar sem kaflinn hefst um auðlinda- og umhverfismál, sem er raunar stuttur, um það bil ein síða sem snýst um loftslagsmál, síðan er fjallað um málefni hafsins og fyrst og fremst um nýtingu okkar á fiskstofnum.
Ég vil spyrja hæstv. utanríkisráðherra: Er einhver stefna til af hálfu ráðuneytisins eða í undirbúningi um verndun hafsins, ekki bara um nýtingu þeirra stofna sem þar er að finna, sem eru okkur gríðarlega mikilvægir, heldur um loftslagsbreytingar, sem munu hafa áhrif á okkur eins og aðra, og munu ekki síst birtast í hafinu. Þá er ég að tala um súrnun sjávar. Ég er að tala um hækkandi hitastig sjávar. Ég er líka að tala um aðra mengun sem þarf að skoða, plastmengun, frávirk lífræn efni, hnignun líffræðilegs fjölbreytileika og auðvitað vil ég líka nefna ofveiði sem við höfum beitt okkur fyrir í í gegnum árin.
Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Er einhver stefna í undirbúningi um verndun sjávar? Er ekki rétt að við Íslendingar ráðumst í slíka stefnu sé hún ekki í undirbúningi eða ekki til og tölum fyrir henni hvar sem við komum, ekki síst í tengslum við loftslagsbreytingar, því að þetta er gríðarlegt hagsmunamál okkar og allra þeirra þjóða sem hér nýta fiskimið Norður-Atlantshafsins?