144. löggjafarþing — 82. fundur,  19. mars 2015.

utanríkis- og alþjóðamál.

621. mál
[11:30]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég hefði kosið að þessi vinna væri komin lengra þó að ég fagni því að samtal sé í undirbúningi, eins og hæstv. ráðherra orðaði það. Ég hefði kosið að samtalið væri hafið. Ég hefði talið ástæðu til þess, væri ég í ríkisstjórn nú, að sett yrði á laggirnar sérstök ráðherranefnd um loftslagsmál þar sem málefni hafsins væru undir. Þetta er stærsta hagsmunamál Íslendinga fram í tímann sem og annarra þjóða.

Við vitum að loftslagsbreytingar munu hafa áhrif. Að sjálfsögðu eigum við að berjast gegn þeim eins og við getum með öllum þeim aðferðum sem við getum nýtt til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. En við þurfum líka að átta okkur á gildi þess að greina vandann og þar skortir fjármagn. Það skortir fjármagn í vöktun, það skortir fjármagn í rannsóknir og greiningar, þannig að ég hvet hæstv. ráðherra eindregið til að flýta þessari vinnu eins og auðið er þannig að við fáum að sjá tillögur um þessi mál í haust.

Aðeins að öðru, virðulegi forseti. Hæstv. ráðherra gerði að umtalsefni nýja Evrópustefnu ríkisstjórnarinnar, um hana er fjallað í skýrslunni. Um hana var líka fjallað á ágætum fundi, hádegisfundi, sem ég sat í gær í Háskóla Íslands um málefni EES-samningsins. Þar var ákveðnum áhyggjum lýst af því að talsvert skorti upp á að Íslendingar gætu sinnt þessum samningi sem skyldi, fyrst og fremst með mannafla og þá vitna ég til mannafla í stjórnsýslunni.

Mig langar að spyrja hæstv. utanríkisráðherra: Hvaða fjármunir hafa verið ætlaðir í framfylgd Evrópustefnu ríkisstjórnarinnar? Vitnað er til þess í skýrslunni að stýrihópur sé að störfum og unnið sé að málum, en hvaða fjármunir hafa verið ætlaðir í þetta? Hvað munum við sjá í þeim efnum vitandi að talsvert hefur verið skorið niður í stjórnsýslunni, ekki síst í utanríkisráðuneytinu? Hvaða fjármuni hefur hæstv. utanríkisráðherra fengið til að framfylgja Evrópustefnunni og hagsmunagæslu Íslendinga í kringum EES-samninginn?