utanríkis- og alþjóðamál.
Hæstv. forseti. Hv. þm. Össur Skarphéðinsson var svolítið úfinn í ræðu sinni, eiginlega umfram tilefni að mér þótti miðað við það að í þeim efnum sem hann reifaði er ekki um að ræða þann skoðanaágreining eða mun á stefnumálum sem ráða mátti af framsetningu hans.
Ég ætla ekki að koma inn á það að öðru leyti en því að hann vék að hugsanlegum fríverslunarsamningum við Japan sem rétt er að hafa komið til umræðu þegar fulltrúar alla vega úr utanríkismálanefnd hafa rætt við japanska fulltrúa. Af því tilefni vildi ég spyrja hv. þingmann, vegna þess að ég veit að hann þekkir þá sögu nokkuð vel: Hvernig hefur gengið í gegnum árin að fá Japana til þess að ræða slík mál? Eftir mínu minni hefur þetta margoft verið tekið upp á undanförnum árum og jafnvel áratugum, en áhugi af hálfu Japana á því að gera fullmótaðan fríverslunarsamning hefur ekki verið mikill.
Í viðtölum eða samtölum sem ég hef átt við sendiherra Japans og aðra hefur komið fram að Japanar séu tilbúnir til að setjast niður og ræða afmarkaða þætti, einstök atriði eða eitthvað þess háttar, en að þar í landi væri takmarkaður áhugi á því að fara í fullmótaðan fríverslunarsamning að því tagi sem við höfum verið að gera við önnur lönd, bæði í gegnum EFTA og eins sér. Það virðist vera um takmarkaðan áhuga að ræða. Ég spyr þingmanninn hvort hann deili því mati mínu.