Norræna ráðherranefndin 2014.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. samstarfsráðherra fyrir skýrsluna og ágæta greinargerð fyrir hönd starfsins innan norrænu ráðherranefndarinnar. Ég ætla ekki að hafa hér langt mál en mér rennur blóðið til skyldunnar sem fulltrúa í Norðurlandaráði á nýjan leik og hafandi eytt talsverðu af tíma mínum í stjórnmálum í norrænt samstarf. Það er komið eitthvað á annan áratuginn sem ég hef setið í Norðurlandaráði og svo í norræna ráðherraráðinu þannig að mér er annt um hvernig hið norræna samstarf þróast og vil veg þess sem mestan.
Ég vil líka þakka hæstv. samstarfsráðherra fyrir forustu hennar fyrir ráðherraráðinu á síðasta ári og tel að hún hafi staðið sig þar vel, að minnsta kosti í öllum þeim tilvikum sem ég varð var við eða leiðir okkar lágu saman skynjaði ég ekki annað en hæstv. ráðherra sinnti því af áhuga og það ber að þakka.
Fyrst er hér örlítið vikið að fjármálum hins norræna samstarfs og reyndar aðeins getið um það að heildarrammi norrænu fjárlaganna á árinu 2014 hafi numið 955 millj. danskra króna, sem gæti verið eitthvað nálægt 16 milljörðum á núverandi gengi. Það er allt og sumt en hér er á bak við talsverð saga sem ég sé mig knúinn til að gera aðeins að umtalsefni. Það er sú niðurskurðarkrafa sem hefur því miður legið eins og mara á hinu norræna samstarfi um alllangt árabil og leitt til þess að fjármunirnir hafa minnkað og auðvitað verulega að verðgildi ef horft væri til þess vegna krafna um niðurskurð. Framan af voru það Svíar sem fóru í forustu fyrir því að krefjast niðurskurðar en þegar þeir létu af því tók kannski ekki betra við því Danir tóku þá við keflinu og hafa haldið á því að undanförnu. Á mönnum hefur hvílt krafa um að hagræða verulega og draga úr útgjöldum, þó að málamiðlanir hafi kannski dregið nokkuð úr því sem menn voru að setja upp, jafnvel kröfur um beinan 10% niðurskurð á tiltölulega skömmum tíma. Það er engu að síður þannig að fjármunirnir hafa rýrnað og það er ekki, ef ég veit rétt, útkljáð enn í hve miklum mæli menn gætu þurft jafnvel á næsta ári eða einhverjum árum inn í framtíðina að mæta slíkum kröfum. Þær hafa alla vega verið uppi fram undir þetta. Ég kom lítillega að þessu sem samstarfsráðherra í það eina skipti sem mér hefur hlotnast sá heiður að gegna því embætti í fæðingarorlofi fyrrverandi samstarfsráðherra, Katrínar Jakobsdóttur. Afstaða Íslands á þeim tíma sem átti nú ekki mikla peninga var sú að við út af fyrir sig hefðum getað sætt okkur við einhverja aðhaldskröfu sambærilega því sem maður sá að var verið að gera, ekki hér auðvitað þar sem miklu harðar þurfti að ganga fram en t.d. í Danmörku, en við tókum a.m.k. ekki undir beinan niðurskurð af þessu tagi og ég vona að sama stefna sé við lýði hjá núverandi ríkisstjórn. Þvert á móti finnst mér að nú þurfi að snúa við blaðinu og ég kem aðeins betur að því síðar vegna þess að ég tel hagsmuni Íslands liggja klárlega í öflugu norrænu samstarfi.
Í öðru lagi er hér vikið að endurskipulagningu á verklagi og starfsháttum norræna ráðherraráðsins og það er bara gott og vel að það er í farvegi. Að sjálfsögðu eiga menn alltaf að vera tilbúnir til endurmats á starfsháttum sínum. Sambærileg vinna er í gangi á vettvangi Norðurlandaráðs og þar eru sumpart meira að segja komnar til framkvæmda vissar skipulagsbreytingar varðandi tilhögun þinga o.fl. Ég held að það sé ágætt að menn á báðum vængjum samstarfsins innan ráðherraráðsins og Norðurlandaráðs eða þingmannavængsins skoði þetta skipulag. Ég vil þó slá þann varnagla að stundum finnst mér orka manna fara óþarflega mikið í að velta á fimm til tíu ára fresti fyrir sér skipulagi sem í raun er þrautreynt og hefur staðist tímans tönn og er engin ástæða til að breyta breytinganna vegna. Norðurlandaráð hefur að minnsta kosti stundum farið offari í þeim efnum, samanber þær miklu breytingar sem gerðar voru á 10. áratugnum en gengu svo til baka eftir tiltölulega skamman tíma þegar menn komust að því að fyrra skipulag hafði verið miklu betra en þrískiptingin sem keyrð var um tíma með Norðurlandanefnd, nærsvæðanefnd og Evrópunefnd.
Í þriðja lagi vil ég nefna það sem fjallað er um í sambandi við sameiginlega kynningu á Norðurlöndunum á alþjóðavettvangi og tilefni til að kynna Norðurlöndin meira sameiginlega og skapa þeim nafn eða vörumerki, getum við sagt, alþjóðlega. Ég er mjög áhugasamur um að að þessu sé unnið. Í efnahagsnefnd Norðurlandaráðs hafa verið lagðar fram tillögur og vinna í þessum efnum í gangi þar sem kannski sérstaklega hefur verið horft á möguleika Norðurlandanna á sviði ferðaþjónustu á fjarlægum mörkuðum í gegnum það að reyna að kynna Norðurlöndin sem sameiginlegan markað, sameiginlegt vörumerki og ég held að í því liggi miklir möguleikar. Ég held að það sé líka gott fyrir Norðurlöndin að þau öðlist sterkari sameiginlega ímynd út á við í gegnum slíka nálgun. Ég sé ekki aðeins í þessu möguleika viðskiptalegs eðlis og að þetta styrki möguleika okkar til að koma menningu okkar og nafni á framfæri í heiminum heldur sé þetta líka gott fyrir okkur sjálf, að þetta styrki hina sameiginlegu norrænu ímynd.
Varðandi utanríkismálin sem hér koma lítillega við sögu í nokkrum köflum, svo sem í gegnum samskiptin við Rússland, þá eru þau að sjálfsögðu komin meira á dagskrá Norðurlandaráðs nú en þau voru áður og svo sem alls ekki neitt fyrir ekki meira en svona 20 árum síðan og það er vissulega vel. Það hefur óumdeilanlega hleypt á köflum meira lífi í umræður og gert þær sumpart pólitískari þegar menn takast á við að ræða þau mál. Það hefur komið í ljós að það er ekkert vandamál að ræða þau þrátt fyrir ólíka skipan öryggismála eða varnarmála og alþjóðatengsl Norðurlandanna, hlutleysi Svía og Finna o.s.frv. Jafnvel eru uppi hugmyndir um að taka einhver af næstu stóru skrefunum í að efla norrænt samstarf og dýpka það m.a. með því að horfa meira til sameiginlegrar stefnumótunar og sameiginlegrar nálgunar Norðurlandanna í samskiptum við grannríkin, varðandi heimskautasvæðið o.s.frv.
Hvað ber svo framtíðin í skauti sér eða hvað á hún að bera í skauti sér? Hvað viljum við Íslendingar? Það er kannski eðlilegast að ræða það fyrst og fremst hér þegar við skiptumst á skoðunum um þetta heima á Alþingi Íslendinga. Ég nefni aftur fjárveitingarnar. Ég tel að Ísland eigi tvímælalaust að tala sterkt fyrir því að norrænt samstarf sé ekki í reynd gengisfellt, samanborið við ýmislegt annað alþjóðlegt samstarf sem við erum þátttakendur í, að á því hvíli einhver sérstök niðurskurðarkrafa á sama tíma og við horfum á útgjöld aukast mjög víða annars staðar í alþjóðlegu samstarfi. Fyrir okkur Íslendinga, fyrir sjálfstjórnarlöndin, fyrir Noreg og fyrir öll Norðurlöndin auðvitað tel ég að þetta sé alveg einboðið. Ef við lítum á tölurnar hér þá er ég ekki alveg viss um að Íslendingar átti sig á því að þetta er þrátt fyrir allt ekki stærra batterí í heild sinni en sem nemur um 16–17 milljörðum kr. eða hvað það er. Nú man ég ekki hvert gengið nákvæmlega á dönsku krónunni er, ætli það geti ekki verið nálægt 16 eða eitthvað svoleiðis. Það vill svo til að Ísland borgar um 1% eða jafnvel undir 1% núna eftir að landsframleiðsla okkar féll. Landsframleiðsla Noregs hefur vaxið svo mikið að þeir eru að verða mjög stórir í greiðslunum. Það eru þá 160 millj. kr. Ætli Íslendingar átti sig almennt á því að við verjum svona lágri fjárhæð beint í iðgjaldið, getum við sagt? Auðvitað berum við ýmsan annan kostnað en hvað ætli við fáum til baka? Þegar menn horfa til norræns samstarfs og alls þess sem þar er á dagskrá og hversu stóran sess það skipar þá er ég alveg viss um að fáum mönnum hér á götunni mundi detta í hug að framlag Íslands væri ekki nema 160 millj. kr. Auðvitað er þetta ekki neitt neitt.
Hvað erum við búin að punga út í NATO undanfarin ár og höfuðstöðvarnar þar? (Gripið fram í: Allt of mikið.) Allt of mikið, fleiri hundruð millj. kr. á ári í tilgangsleysi. Þess vegna eigum við ekki að kvíða því og eigum þvert á móti að leggja á það mikla áherslu að norrænt samstarf verði eflt. Það skilar sér margfalt og á svo margvíslegan hátt. Ég held að það hafi alltaf sýnt sig, þrátt fyrir efasemdarraddir sem koma auðvitað af og til upp, t.d. í tengslum við inngöngu Svía og Finna í Evrópusambandið. Þá héldu margir að það mundi bara fjara undan norrænu samstarfi því þar með væri meiri hluti Norðurlandanna kominn í ESB og enginn áhugi yrði á þessum klúbbi þarna á Norðurlöndunum. En annað hefur komið á daginn.(Gripið fram í.)
Ég spáði því þá að það sama mundi gerast með Svía og Finna eins og gerðist með Dani. Þeir urðu auðvitað óskaplega uppteknir af Evrópusambandsaðild sinni fyrstu fimm til tíu árin eftir að þeir gengu þangað inn en svo rann það upp fyrir þeim að heimurinn frelsaðist nú ekkert endilega í Brussel og með því að vera í Evrópusambandinu og þeir komu aftur til baka, komu aftur heim. Þeir hafa ekkert verið síðri liðsmenn en hverjir aðrir í norrænu samstarfi, að slepptu því síðasta að þeir hafa heimtað niðurskurð að undanförnu. Það sama hef ég merkt aftur bæði hjá Finnum og Svíum, þetta hefur leitað nýs jafnvægis og stöðugleika og það er réttara að tala áfram fyrir öflugu norrænu samstarfi. Og svo vel er að menn hafa þorað að dusta rykið aftur af djörfum hugmyndum eins og að ræða um einhvers konar sambandsríki eða ríkjasamband á Norðurlöndum. Það er lifandi umræða og tillöguflutningur um Forbundsstat Norden …(ÖS: Skandinavisminn lifir.) Skandinavisminn lifir, hann er ekki dauður og við eigum að tala fyrir honum. Að sjálfsögðu er mörgum spurningum ósvarað um útfærslur og annað í þeim dúr en öflugra samstarf Norðurlandanna í mínum huga getur aldrei orðið til annars en góðs. Í hverfulum heimi er gríðarlegur stöðugleiki fólginn í því fyrir lítið land eins og Ísland að eiga svona sterkt og gott samband við grannríki sín. Ég tel að það sé líka sérstaklega mikilvægt fyrir sjálfstjórnarsvæðin og granna okkar Færeyinga og Grænlendinga þar með, Álandseyinga líka, vegna þess að þetta er á margan hátt þeirra fyrsti gluggi út í heiminn. Ég er stuðningsmaður þess, svo það sé sagt, að þeir fái fullgilda aðild á eigin forsendum að Norðurlandaráði en þurfi ekki að skríða inn í Norðurlandaráð með fulltrúa á kvóta Dana eða Finna.
Virðulegi forseti. Þetta eru mínar áherslur og ég vildi bara rétt koma þessu að og ætla tímans vegna ekki að hafa um það fleiri orð.