144. löggjafarþing — 83. fundur,  23. mars 2015.

frumvarp um sölu áfengis í matvöruverslunum.

[15:16]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Það sem hér er um rætt er frumvarp sem lýtur að því að selja áfengi í matvöruverslunum og snýst í grunninn um þá spurningu hvort aðrir en opinberir starfsmenn eigi að selja eða annast smásölu áfengis. Eftir því sem mér skilst þá felur frumvarpið að öðru leyti í sér eins litla breytingu á lagaumhverfi fyrir áfengis- og tóbakssölu og mögulegt er.

Það sem mér er helst í huga varðandi þetta mál er hvernig við getum dregið sem mest úr misnotkun á áfengi, ekki endilega bara neyslu heldur fyrst og fremst misnotkun. Við búum við þann veruleika á Íslandi að áfengi er lögleg söluvara ef svo mætti segja, sömuleiðis tóbak, hvort tveggja er mjög skaðlegt. Umræðan hefur að stærstum hluta beinst að því hvort sú breyting sem lögð er til í frumvarpi hv. þm. Vilhjálms Árnasonar og fleiri muni auka neyslu og gera áfengi aðgengilegra fyrir fólk, en ég hef verið mjög hugsi yfir þeirri einföldu staðreynd að stefna ÁTVR, ríkisfyrirtækis, hefur á allmörgum síðastliðnum árum verið sú að auka aðgengi fólks að þessari löglegu söluvöru. Þegar verið er að færa út verslanir, fjölga þeim vítt og breitt um landið þá er ríkið í raun í sjálfu sér, ef taka ætti mótrökin gegn þessu, að ganga gegn þeirri yfirlýstu stefnu sem það hefur að berjast gegn misnotkun á þessum vökva. Ég geri ráð fyrir því varðandi lýðheilsunefndina að hluti af hennar verkefnum verði m.a. sá að horfa til áhrifa …(Forseti hringir.) … endanlegar tillögur verða.