144. löggjafarþing — 83. fundur,  23. mars 2015.

málefni Aflsins á Akureyri.

[15:31]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Eygló Harðardóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrirspurnina. Ég hef ekki lesið greinina sem þingmaðurinn gerði ráð fyrir að ég hefði lesið í Kjarnanum en skal athuga það að loknum fyrirspurnatíma.

Ég var í viðtali í hádegisfréttum RÚV þar sem málefni Aflsins voru einmitt rædd. Það sem verið er að horfa til og bera sig saman við eru Stígamót og Kvennaathvarfið, sem eru stærstu samtök sem sinna annars vegar fórnarlömbum kynferðisofbeldis og hins vegar þeim konum sem verða fyrir heimilisofbeldi eða ofbeldi í nánum samböndum. Það eru sérstakar fjárveitingar sem koma með sérstökum lið á fjárlögum meðan aftur á móti þær fjárveitingar sem hafa farið til Aflsins og Drekaslóðar, sem var líka nefnd, koma í gegnum félagastyrkina.

Sú fjárveiting sem tekin var ákvörðun um í fyrra umsóknarferlinu í félagastyrkjum í ráðuneytinu er eilítil hækkun frá því sem var í fyrra. Hins vegar er það þannig að það komu margfaldar umsóknir frá mjög verðugum og góðum samtökum inn í félagastyrkina og því miður er takmarkað fjármagn þarna. Það er reynt að fara faglega yfir þær umsóknir. Þetta var sú tillaga sem ég fékk, um að veita þessa upphæð.

Það var svigrúm í ráðuneytinu þegar fór að líða á árið 2014 til að veita nokkra viðbótarfjárveitingu til Aflsins. En ég tel, eins og kom fram í viðtalinu, að mjög mikilvægt sé í tengslum við aðgerðaáætlun gegn ofbeldi, sem ég og innanríkisráðherra og menntamálaráðherra erum að vinna að og höfum í hyggju að koma með inn í þingið, að við hugum sérstaklega að því hvernig við viljum styðja við þau félagasamtök sem veita fórnarlömbum ofbeldis þjónustu og einnig, sem ég tel mjög brýnt, hvernig við viljum tryggja gæði þeirrar þjónustu sem er veitt. Það hafa komið ítrekaðar ábendingar frá Ríkisendurskoðun um að við þurfum að taka okkur á í velferðarráðuneytinu í því sem snýr að samningagerð þar sem kemur (Forseti hringir.) skýrt fram hver eigi að vera kjarni þjónustunnar sem félagasamtök veita.