144. löggjafarþing — 83. fundur,  23. mars 2015.

vandi Búmanna hsf.

550. mál
[17:26]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Guðbjartur Hannesson) (Sf):

Hæstv. forseti. Ég verð að viðurkenna að ég hef miklar áhyggjur af þeim svörum sem ég hef fengið hér í dag. Í fyrsta lagi er verið að skjóta sér undan því að svara með því að vísa til þess að ég sé að óska eftir svörum um einstaka skuldara. Ég er að spyrja um heilt félagsform sem er húsnæðissamvinnufélag Búmanna.

Við erum að tala um félag sem býr við það núna, af því að þetta er félag þar sem allar íbúðirnar eru undir einu félagi, að 60 til 70 íbúðir eru tómar og þá borga hinir sem eru með íbúðirnar af þessum 60 til 70 íbúðum nema þar sem samið hefur verið um einhverjar frystingar sem hanga þá yfir. Ef þessir aðilar fara á hausinn lendir Íbúðalánasjóður í að taka þetta félag yfir með gríðarlegu tapi. Ætla menn að láta það gerast? Ég ætlast til þess að hæstv. ráðherra svari því sem ráðherra Íbúðalánasjóðs hvernig eigi að reyna að taka á þessu.

Þess vegna spurði ég líka út í lögin af því að ég vissi að hæstv. ráðherra hefur talað mjög fyrir húsnæðissamvinnufélögum og gerir það hér í framtíðarsýninni. Formið er dautt. Ef þeir aðilar sem nú eru í Búseta, eða sérstaklega þeir sem eru í Búmönnum, lenda í vandræðum þá fer enginn inn í þetta félagaform. Það var ekkert í þeim tillögum sem hér eru sem hindrar að það gerist aftur.

Ég verð að krefjast þess að ríkisstjórnin — og vísi þá ekki hver ráðherra á annan — taki á þessu máli og leysi það þannig að markmiðið, sem ég á sameiginlegt með hæstv. ráðherra og vonandi líka með ríkisstjórninni, náist, þ.e. að jöfnuður ríki á milli ólíkra búsetuforma, hvort sem um er að ræða leigjendur eða íbúðareigendur, að það sé leyst með sambærilegum hætti. Hér eru aðilar sem sitja óbættir eftir aðgerðir ríkisstjórnarinnar. Þegar þær aðgerðir voru til umræðu var spurt um þessi búsetuform. Þá var afdráttarlaus yfirlýsing frá hæstv. ráðherra og frá hæstv. forsætisráðherra um að aðgerðir fyrir þessa hópa kæmu síðar. Það er ekki verið að boða það í þessum svörum.