veiðireglur til verndar ísaldarurriða.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Það var velviljað og jákvætt því málefni sem ég spurði um. Ég tók eftir því að hæstv. ráðherra sagði að það þyrfti auðvitað betri rannsóknir til að hægt væri að slá einhverju föstu um stærð urriðans þar. Ég er honum algerlega sammála, en ekki er miklum rannsóknum að dreifa nema á Öxarárstofninum. En ég hef hins vegar af þeim tengslum sem ég hef við veiðimenn og mínum lifandi og ástríðufulla áhuga á þessu máli reynt að slá á það í gegnum samtöl við mjög glögga veiðimenn og ég hef komist að þeirri niðurstöðu, sem þeir telja ekki fjarri réttu lagi, að menn séu kannski núna, sem er ansi mikið, að veiða og sleppa 3 þúsund urriðum í Þingvallavatni. Þar af verður kannski að veiða þriðjunginn tvisvar eða oftar en einu sinni, og þeir virðast lifa mjög vel þótt þeim sé sleppt með þessum hætti. Þá þarf ekki marga gikki í slíkri veiðistöð til að skera hressilega undan urriðanum og sérstaklega skiptir það máli með stóra urriðann og þá allra stærstu, ekki bara vegna þess að þeir framleiða fleiri hrogn af því að þeir eru stærri, heldur af því að hrognin eru líka stærri en undan smærri fiskinum og lifa miklu betur, fyrir nú utan að í Öxará virðist sem stóri urriðinn sé jafnvel að slæðast til hrygningar í janúar, sem ég held að sé aðlögun stofnsins að hamfarahlaupunum sem eru regluleg í Öxará. Það er mjög mikilvægt að brýna þetta fyrir mönnum.
Spurningin er sú sama og hv. þm. Kristján L. Möller kom með hér áðan: Það eru ekki margir veiðibændur við vatnið. Það eru ekki margir bændur eftir. Ef menn skoða fyrri svör hæstv. ráðherra til mín kemur í ljós að ríkið, borgin og þingið hafa forsjá yfir meiri hluta strandlengjunnar. Hæstv. ráðherra, það er þyngra í honum pundið en mörgum öðrum í ríkisstjórninni og hann getur beitt sér fyrir því að veiðifélagið fari þessa leið án þess endilega að (Forseti hringir.) skakast sé í ráðherranum um of. Þar að auki, frú forseti, vil ég segja að hann hefur reynst (Forseti hringir.) urriðanum svo vel að hefði hann kosningarrétt mundi hann sennilega frekar kjósa hann en mig. (Forseti hringir.) Það er náttúrlega af því að ég er ekki í …