144. löggjafarþing — 84. fundur, 24. mars 2015.
tillaga stjórnarandstöðunnar um þjóðaratkvæðagreiðslu.
Forseti vill af þessu tilefni eingöngu segja að varðandi þingmannamálin hefur verið ágætissamstaða um það meðal þingflokksformanna og forseta að reyna að greiða fyrir því að þingmannamál kæmust almennt á dagskrá. Þegar það er skoðað í samhengi eru síst færri þingmannamál sem hafa komist á dagskrá en verið hefur undanfarin þing.