tillaga stjórnarandstöðunnar um þjóðaratkvæðagreiðslu.
Herra forseti. Í febrúar 2014 kom hér inn með engum fyrirvara tillaga um slit á aðildarviðræðum. 53.555 manns mótmæltu því skriflega sem og með mörgum fjöldafundum á Austurvelli. Verið var að mótmæla því gerræði í kringum þetta mikilvæga hagsmunamál og svikum á kosningaloforðum. Jæja, það mál var látið sofna í nefnd til að verja ríkisstjórnina frekari vandræðum. En síðan sendir hæstv. utanríkisráðherra bréf og allt fer hér í uppnám. Í ljós kemur að um 80% kjósenda vilja fá að kjósa um framhald málsins og formenn allra minnihlutaflokkanna hafa lagt fram tillögu þar um en hún kemst ekki á dagskrá. Herra forseti. Ég skil ekki svona dagskrárgerð.