tillaga stjórnarandstöðunnar um þjóðaratkvæðagreiðslu.
Virðulegi forseti. Ég held að það sé full ástæða til að rifja upp að þegar bréf hæstv. utanríkisráðherra hafði komið fram þá kom fram ósk samdægurs frá þingflokksformönnum stjórnarandstöðunnar um að málið fengist rætt tafarlaust í þinginu. Við óskuðum eftir því, öll stjórnarandstaðan á Alþingi Íslendinga, að þingsalurinn yrði opnaður fyrir umræðu. Okkur var synjað um það. Síðan gerist það að hér er boðuð með góðum fyrirvara þingsályktunartillaga sem borin er fram af öllum stjórnarandstöðuflokkunum og forustumönnum þeirra en okkur er líka synjað um að það mál fari á dagskrá. Ég held að virðulegur forseti þurfi að endurmeta stöðuna sem stjórnarandstaðan hefur hér í þinginu. Þegar maður horfir á þá stöðu liggur fyrir að maður veltir því fyrir sér hvort þingsalurinn sé opnari fyrir (Forseti hringir.) tilteknum flokkum en öðrum.