144. löggjafarþing — 84. fundur,  24. mars 2015.

störf þingsins.

[14:33]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F):

Hæstv. forseti. Hagstofan hefur nú birt nýjar upplýsingar um lífskjör og lífsgæði barna á Íslandi. Hið jákvæða sem birtist í þeim tölum er að hlutfall barna sem búa á heimilum undir lágtekjumörkum eða eiga mjög erfitt með að láta enda ná saman lækkaði lítillega.

Virðulegi forseti. Það er í sjálfu sér jákvætt að hlutfallið fari lækkandi en eftir stendur sú alvarlega staðreynd að um tíundi hluti barna býr við skert lífskjör og líður skort á efnislegum gæðum. Ein alvarlegasta birtingarmynd þessa ástands er sú að börn taka í minna mæli þátt í skipulögðu æskulýðs- og tómstundastarfi. Tæpur þriðjungur barna á Íslandi er ekki í reglubundnu tómstundastarfi.

Á læknamálþingi 2010 kom meðal annars fram að rannsóknir sýna að börn sem líða skort af einhverju tagi og búa við versnandi andlega heilsu muni síðar á ævinni njóta verri líkamlegrar heilsu en ella. Á móti sýna rannsóknir að þátttaka barna í skipulögðu tómstundastarfi dregur úr líkum á hvers kyns frávikshegðun og eykur líkur á betri líðan og góðri líkamlegri heilsu.

Virðulegi forseti. Þessi vandi er að stærstum hluta, samkvæmt þessum nýjustu tölum Hagstofunnar, tengdur tekjum og stöðu á húsnæðismarkaði. Ég velti því fyrir mér í hvað við eyðum orku okkar og kröftum hér í störfum okkar. Við höfum tækifæri núna til að vinna að breytingum. Ég treysti því að ríkisstjórnin komi með innlegg í kjaraviðræður og beiti sér fyrir því að samið verði um verulegar kjarabætur fyrir þá lægst launuðu. Þá eru húsnæðisfrumvörp á leiðinni og við getum greitt götu þeirra fjölskyldna sem standa höllum fæti á húsnæðismarkaði.

Þannig, virðulegi forseti, getum við bætt stöðu barnanna okkar.