alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands o.fl.
Virðulegi forseti. Sú stefnumótun, að færa framkvæmdina inn í ráðuneytið þar sem eftirlitið og stefnumótunin eiga að vera, er eigi að síður þvert á þá þróun sem við höfum séð í íslenskri stjórnsýslu á undanförnum árum þar sem einmitt hefur verið talað fyrir því að stefnumótunar- og eftirlitshlutverk ráðuneyta séu skýrð og framkvæmdin sé utan ráðuneyta. Það er auðvitað ekki fullnægjandi að vísa til Ríkisendurskoðunar sem hefur að sjálfsögðu ekki getu til þess að hafa alltaf virkt eftirlit. Ríkisendurskoðun gerir úttektir á einhverjum tímafresti, ýmist umbeðnar eða óumbeðnar. Ríkisendurskoðun er ekki í stanslausu eftirliti með hverri einustu stofnun ríkisins, þannig að mér finnst það sérkennileg tilhögun að eftirlitið eigi að vera inni í sömu stofnun og þeirri sem fer með framkvæmdina.
Í ljósi þessa langar mig að spyrja hæstv. ráðherra af því það er ekki nægilega skýrt í frumvarpinu að mínu mati: Verður þessu skipt innan ráðuneytisins með einhverjum hætti þannig að eftirlitið sé (Forseti hringir.) annars staðar innan ráðuneytisins en framkvæmdin sjálf?