144. löggjafarþing — 84. fundur,  24. mars 2015.

alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands o.fl.

579. mál
[16:51]
Horfa

Óttarr Proppé (Bf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir skelegga og góða ræðu. Eins og oft er mjög gagnlegt að hlýða á hv. þm. Össur Skarphéðinsson, enda er hann eldri en tvævetur hér í þinginu og ekki síst þegar kemur að utanríkismálunum og hans margháttuðu og miklu reynslu.

Mig langar til að leggja spurningu fyrir þingmanninn og eiginlega leita í þekkingarhaug hans, ef svo má að orði komast. Það hefur komið aðeins fram í umræðunni, bæði í dag en einnig í almennri umræðu eftir að ljóst var að hæstv. utanríkisráðherra ætlaði að leggja fram tillögu um að leggja niður Þróunarsamvinnustofnun, að þessi umræða hefur komið upp áður. Í ræðu sinni minntist hv. þingmaður á að ekki hefði verið lagt til að leggja Þróunarsamvinnustofnun niður í tíð forvera hans eða þegar hann gegndi embætti utanríkisráðherra. Mig langar til að spyrja hann út í það. Nú er ekki lengra síðan en 2008 að lögum er breytt og hnykkt á starfi Þróunarsamvinnustofnunar. Að því er virðist, og það hefur komið fram í máli allra og þar á meðal hæstv. utanríkisráðherra, var það með mjög góðri niðurstöðu og gæði starfsins hafa aukist. Hver er saga þreifinga til að ýmist leggja Þróunarsamvinnustofnun niður eða að auka sjálfstæði hennar og leggja í hana meiri kraft?