alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands o.fl.
Ég mundi ekki treysta stofnuninni algjörlega undir núverandi forustu. Hún er reyndar sérlega vel leidd og alveg hægt að segja að forstjóri hennar sé framúrskarandi embættismaður. Hann hefur stýrt stofnuninni með þeim hætti, og reyndar forveri hans líka, að að mati ríkisendurskoðanda er hún fyrirmyndarstofnun. Hún heldur sig alltaf innan fjárlaga. Ég tel því að atgervið í forustu stofnunarinnar væri alveg nægilega ríkt til að taka að sér slík verkefni. Þá ber þess náttúrlega að geta að umræddur forstjóri hefur allra Íslendinga mesta reynslu af svona störfum. Hann hefur gegnt háum stöðum hjá ýmsum erlendum stofnunum og geta hans speglast meðal annars í því sem ég sagði í andsvari við hv. þingmann áðan, að honum hefur tekist að afla fjár fyrir Ísland, bætt stórlega við það sem við veitum til þess hér á hinu (Forseti hringir.) háa Alþingi.
Það er hins vegar þannig að vegna þessarar óvissu hefur stofnunin (Forseti hringir.) þurft að halda að sér höndum og ekki taka við peningum sem að utan gætu komið.