144. löggjafarþing — 84. fundur,  24. mars 2015.

alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands o.fl.

579. mál
[18:44]
Horfa

Brynhildur Pétursdóttir (Bf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Mér þykir einmitt 8. gr., sem hv. þingmaður kom inn á, mjög mikilvægt atriði. Þar fyrir utan skil ég ekki af hverju verið er að breyta einhverju sem gengur vel, en það er svolítið önnur umræða.

Ég veit ekki alveg hvort ég heyrði rétt, maður dettur stundum út þegar maður situr í þingsal, hvort talað hefði verið um það áðan þegar hæstv. ráðherra flutti ræðu sína að Ríkisendurskoðun mundi að einhverju leyti taka á þessu, mér finnst ég hafa heyrt það. Við höfum nú alltaf Ríkisendurskoðun. Ég veit ekki til þess að maður frá Ríkisendurskoðun sé mikið inni í ráðuneytunum að taka út ráðuneyti. Ég man ekki hvort það eru einhver dæmi þess eða hvort það sé þá hugmyndin, hvort það geti verið einhver leið að Ríkisendurskoðun geti vasast í þessu tiltekna verkefni og gert úttekt á því. Hvort það er leið veit ég ekki en það er alveg ljóst að einhver óháður aðili þarf að fara með þetta eftirlit. Það gæti verið Ríkisendurskoðun en ég veit ekki til þess að hún hafi gert stjórnsýsluúttektir á ráðuneytum eða tekið út einhver ákveðin verkefni ráðuneyta. Það er meira flutningur, einhver framkvæmd ráðuneyta sem verið er að skoða, stofnanir og annað.

En ég tek algerlega undir með hv. þingmanni. Þetta er mjög sérstakt og ég hef ekki enn þá alveg skilið hvað býr í raun að baki því að menn fara í svona viðamikla aðgerð og hvort þetta sé eina skýrslan sem vísað er til. Það eru til fjölmargar skýrslur sem hafa verið skrifaðar á Íslandi án þess að nokkuð sé gert með þær. Ég skil þetta ekki. Veit hv. þingmaður af hverju við stöndum í þessu og erum að ræða þetta mál? Manni finnst að fjölmörg önnur mál ættu að vera komin frá ríkisstjórninni sem eru til einhverra framfara. Þetta er ofar mínum skilningi. Mér finnst verið að láta okkur hafa eitthvað að gera til að koma í veg fyrir að við föttum að það koma engin raunveruleg mál inn í þingið.