alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands o.fl.
Virðulegi forseti. Í 5. gr. er komið inn á það að utanríkisráðherra eigi að leggja fram þingsályktunartillögu fimmta hvert ár, í staðinn fyrir annað hvert ár núna. Síðan skilst mér, en það er ekki mjög ljóst, að leggja eigi fram aðgerðaáætlun annað hvert ár. Þingsályktunin á að vera til fimm ára. Það þýðir að sjaldnar er haft samráð við þingið. En þetta er allt gert undir þeim formerkjum, skilst mér, að verið sé að breyta lögunum um opinber fjármál.
Nú langar mig að spyrja hv. þingmanninn af því að ég verð bara að segja eins og er, ég veit ekki hvað það mál er langt komið: Getum við verið að samþykkja einhver lög um stofnanir, færa stofnanir og hvernig eigi að koma fram við þingið á forsendum þess frumvarps? Er það svo langt komið að líkur eru á því að við samþykkjum það á næstu vikum?