144. löggjafarþing — 84. fundur,  24. mars 2015.

alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands o.fl.

579. mál
[20:29]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það hefur sem betur fer verið svo með þennan málaflokk eins og hér hefur komið fram að menn hafa leitast við að ná einhverri þverpólitískri sátt og þverpólitískri samvinnu um málaflokkinn og það er í raun óslitið þar til í upphafi þessa kjörtímabils þegar komu skyndilega mjög hávær spurningarmerki frá hv. þm. Vigdísi Hauksdóttur og beinlínis andstaða við það að lagt sé fé til þróunarsamvinnu. Ég get ekki séð það öðruvísi. Það er í raun og veru eina varðan á okkar leið sem við sjáum að sé áþreifanlegt og skýrt tilefni til þess að nú þurfi að færa þróunarsamvinnuna nær hinu pólitíska valdi. Þar með hlýtur það að vera að hv. þm. Vigdís Hauksdóttir ráði för. Er það hennar lína sem ræður ferðinni eða hvað telur hv. þingmaður um það? Skemmst er að minnast hér umræðu um samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarflokkanna um að virkja samtakamátt þjóðarinnar og hverfa frá deilum og leiðindum sem hafa einkennt samfélagið, þar til þessi ríkisstjórn tók væntanlega við. En hér virðist ráðherrann aftur, og hann gerði það eftirminnilega í síðustu viku, fara fram með ófriðarnálgun, þ.e. ekki þeirri leið að í svona borðleggjandi málaflokki þar sem hefði verið hægt að stilla saman strengi þá velur hann eiginlega þveröfuga leið. Maður veltir fyrir sér, er það máti ráðherrans í málaflokknum eins og hann leggur sig, í hverju málinu á fætur öðru, eða erum við að tala um pólitískar vendingar í stíl hv. þm. Vigdísar Hauksdóttur sem endurspeglast í þessu máli hér?