144. löggjafarþing — 84. fundur,  24. mars 2015.

alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands o.fl.

579. mál
[20:55]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Við hv. þingmaður sitjum í ágætri nefnd undir stjórn hv. þm. Óttars Proppés um endurskoðun útlendingalaga, sem er dæmi um viðkvæman en víðtækan málaflokk þar sem gildir að freista þess að ná þverpólitískri samstöðu. Það viðfangsefni er flókið og í raun kjörlendi fyrir togstreitu, kjörlendi fyrir pólitísk átök. Samt freistum við þess að gera þetta á þennan hátt og þrátt fyrir allan gnýinn sem stundum er hér innan dyra höfum við freistað þess að halda vinnunni áfram og eftir því hefur verið tekið.

Þar lá til grundvallar ákveðinn skilningur á því hvaða verðmæti væru í húfi, þ.e. að útlendingalöggjöfin þyrfti að vera þannig að hún lifði af kosningar, hún þyrfti að þola sveiflur, þáttaskil o.s.frv. Hér erum við að tala um sams konar mál, mál sem verður að byggja á traustum og þverpólitískum grunni. Því miður hef ég ekki enn þá séð nein tilþrif hæstv. utanríkisráðherra í dag í þá veru að hann leiði vinnu af því tagi.