alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands o.fl.
Virðulegi forseti. Ég hef miklar áhyggjur af því að þetta komi frekar niður á vandaðri stjórnsýslu og trúverðugleika stjórnsýslunnar. Ef ráðuneytin eru að krukka í málin frá öllum hliðum munu koma upp hagsmunaárekstrar og trúverðugleikinn getur beðið hnekki. Við þurfum að hafa línur býsna skýrar. Þú ert með einn sem framkvæmir, þú ert með annan sem er með eftirlitið og stefnumörkunina og það gengur ekki upp að ætla að krulla þessu öllu saman.
Menn hafa tekið Námsgagnastofnun og Námsmatsstofnun sem dæmi í umræðunni. Þar er nú einn ráðherra, menntamálaráðherra. Í staðinn fyrir að taka þetta inn í ráðuneytið, sem er fáránleg hugmynd, er ráðherra að sameina þetta í eina stofnun, Menntastofnun eða Menntavísindastofnun, ég man ekki hvað hún heitir, og er að flytja verkefni úr ráðuneytinu inn í stofnunina til að efla hana. Þannig má án efa ná fram hagræðingu og það er líka ákveðin leið til að efla stofnanakerfið eða stofnanirnar sjálfar í því að framkvæma. Ef menn líta svo á að fækka þurfi stofnunum þá er það eðlilegri leið til þess. En svo getur það ekki alltaf verið markmið í sjálfu sér, vegna þess að þetta á að snúast um verkefnin sjálf. En ef það er þannig að menn vilja gera það þá er það eðlilegra.
Ég á að mörgu leyti dálítið erfitt með þetta mál vegna þess að ég get ekki séð að það sé með nokkru móti eðlilegt að taka svona verkefni inn í ráðuneyti. Hvað þá með önnur verkefni annars staðar? Ég tók sem dæmi í ræðu minni: Hvað ef okkur hefði til dæmis dottið í hug á sínum tíma og mér sem iðnaðarráðherra að það væri bara best að ég sæi um Tækniþróunarsjóð og ég sæi um Nýsköpunarmiðstöð og Ferðamálastofu og hitt og þetta sem stofnanirnar voru að sjá um? Það er enginn munur á því og þessu. Það er bara verið að taka ákvörðun um að taka verkefni beint inn í ráðuneytið og það er þá algjörlega ný þróun sem mér (Forseti hringir.) finnst ríkisstjórnin þurfa að útskýra: Á hvaða vegferð er hún með það?