alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands o.fl.
Herra forseti. Auðvitað er það rétt sem hv. þm. Svandís Svavarsdóttir benti á á undan mér, það er ekki boðlegt að hér sé efnt til kvöldfundar sem er fullkomlega eðlilegt samkvæmt þingsköpum en að hv. þingmenn stjórnarmeirihlutans nenni ekki að vera við umræðurnar, ekki einu sinni hv. þingmenn í utanríkismálanefnd sem á að fara að fjalla um málið. Þeir nenna ekki að taka þátt, eða hafa þeir ekki áhuga á málinu? Hafa þeir ekki sannfæringu fyrir málinu? Við vitum ekkert um það. Við vitum ekkert hvað þeim finnst því að þeir hafa ekki flutt eina ræðu og ekki gert eina athugasemd í allri umræðunni fyrir utan hæstv. ráðherra sem hér situr.
Virðulegi forseti. Þetta er ekki boðleg frammistaða á Alþingi Íslendinga. Við erum að reyna að eiga samræður, við erum að reyna að setja fram ákveðna gagnrýni á það frumvarp sem hér er undir, en það eru engin svör, engar skoðanir, engin skoðanaskipti. Þetta er ekki í lagi (Forseti hringir.) og við getum ekki látið Alþingi halda áfram að starfa með þessum hætti. Eins og hv. þm. Kristján Möller benti á (Forseti hringir.) er þetta ekki í fyrsta sinn.