144. löggjafarþing — 84. fundur,  24. mars 2015.

alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands o.fl.

579. mál
[23:29]
Horfa

Halldóra Mogensen (P) (andsvar):

Herra forseti. Þetta er mjög áhugavert. Það er mjög erfitt að fá þverpólitíska sátt um nokkuð hérna meðan fólk er ekki tilbúið til að vinna saman og vera heiðarlegt hvert við annað um markmið og fleira. Ég veit það ekki, klókari aðilar verða að útskýra fyrir mér hvað gerist í slíkum aðstæðum. En takk samt. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að benda mér á þetta.