alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands o.fl.
Hæstv. forseti. Ég held að ég og hv. þingmaður séum ekki alveg sammála þarna því að þingið getur náttúrlega skipt sér af þessum málum eins og það vill, sett málið á dagskrá þegar svo ber undir.
Varðandi opnunina. Ég held að við eigum að leitast við að opna stjórnkerfið sem mest og auka áhrif fólks. En við verðum að líta til þess að lögð er fram þingsályktunartillaga á þriggja ára fresti sem er send út til umsagna til fjölda aðila, allir geta þar lagt sitt á vogarskálarnar. Síðan er gefið út fréttabréf um þróunarsamvinnuna af Þróunarsamvinnustofnun, en margir hafa komið inn á hér að þeir óttist að lélegra upplýsingaflæði verði um málaflokkinn. Ég er ekki að segja að upplýsingabréf eða fréttabréf gefi ekki aukin áhrif fólks inn í málaflokkinn, en það er (Forseti hringir.) töluvert aðgengi að upplýsingum um málaflokkinn. Þingið er ekkert í vandræðum eins og (Forseti hringir.) staðan er í dag.