144. löggjafarþing — 86. fundur,  26. mars 2015.

meðferð gagna um skattaskjól.

[10:51]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf):

Virðulegur forseti. Það er alveg óþarfi af hæstv. fjármálaráðherra að reiðast svona þó að bent sé á þann augljósa ófrið sem ríkisstjórnin stendur hér fyrir.

En það eru að verða tvö ár síðan ég spurði hæstv. fjármálaráðherra í þessum fyrirspurnatíma um ICJ-gögnin um skattaskjól, skattundanskot og aflandseyjar og hvað hann hygðist gera í þeim efnum. Nú eru þessi gögn komin í hendur skattrannsóknarstjóra og það vekur auðvitað áhyggjur vegna þess að við höfum aldrei fyrr notað slík gögn á Íslandi þó að Þjóðverjar hafi gert það með góðum árangri. Hér er enginn rammi í kringum þá starfsemi.

Hv. þm. Brynjar Níelsson, fyrrverandi formaður Lögmannafélagsins og reyndur verjandi, hefur lýst því að það geti verið að notkun þessara gagna brjóti í bága við lög. Við í stjórnarandstöðunni höfum lýst því yfir að við séum tilbúin að greiða fyrir hraðri meðferð allra þeirra mála sem hæstv. fjármálaráðherra þurfi að koma með inn í þingið til að bæta úr því, til að tryggja að lögformlega verði rétt staðið að því að lögsækja skattsvikara á Íslandi, að það verði alveg tryggt að lögum að það sé heimilt að nota þjófstolin gögn, að það sé alveg heimilt að kaupa gögn án þess að fara eftir gildandi ákvæðum bókhaldslaga, eins og fjármálaráðherra hefur reynt að setja skilyrði um, til að tryggja fjárveitingar til embættis skattrannsóknarstjóra o.s.frv.

Nú er að verða liðinn framlagningarfrestur og ég spyr hæstv. fjármálaráðherra: Hvernig stendur á því að hann er ekki kominn með þingmál til að tryggja skýrar og ótvíræðar lagaheimildir til að nota svona gögn, til að kaupa svona gögn, stolin eða vel fengin, og nota til þess að standa skattsvikara á Íslandi að verki?