viðvera ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum og starfsáætlun.
Virðulegi forseti. Ég verð að taka undir með kollegum mínum hér varðandi þetta mál. Það er afar sérstakt að forsætisráðherra sem hefur verið svo yfirlýsingaglaður, sem hann er svo sem ekki í fyrsta skipti á þessu þingi og formenn eru gjarnan, virðist boða hér stórkostlega umfangsmikil frumvörp varðandi afnám hafta. Þau hafa ekki verið lögð fram eðli málsins samkvæmt vegna þess að nú er farið að tala um stöðugleikaskatt. Ég finn hann að vísu ekki í orðabók en það er aftur annað mál. Það væri vert að vita hvort þingmenn Framsóknarflokksins geti eftir þessa helgi útskýrt stöðugleikaskattinn.
Eins og hér kom fram var fjármálaráðherra á meðan í Flórída og talaði um verkföll sem þá þegar voru hafin og stöðugleika á vinnumarkaði þannig að þetta er í hróplegu ósamræmi við það sem við hér upplifum og við mundum gjarnan vilja fá að eiga orðastað við þessa forustumenn ríkisstjórnarinnar. (Forseti hringir.) Svo er búið að álykta af hálfu framsóknarmanna gegn bankabónusum sem er vel en það er í frumvarpi sem fjármálaráðherra hefur lagt fram. Þau eru mörg, málin þar sem ríkisstjórnarflokkarnir eru svo sannarlega þvers og kruss og alls ekki sammála um það sem í þeim kemur fram.