nýframkvæmdir í vegamálum.
Hæstv. forseti. Samgöngumál eru mér hugleikin og hafa alltaf verið. Alþingi hefur gert margar ályktanir um samgöngumál, byggðaáætlun og fleiri mál og ekki þarf að efast um að margar af þeim samgönguframkvæmdum sem ráðist hefur verið í undanfarin ár hafa styrkt mjög innviði úti á landi. Þess vegna er það sem ég legg fram fyrirspurn í þremur liðum til hæstv. ráðherra:
1. Hver er fjárhagsleg staða Vegagerðarinnar til að bjóða út ný vegagerðarverk á árinu 2015?
2. Hvaða ný verk verða boðin út í vegamálum á þessu ári?
3. Hvert er útlitið fyrir árið 2016 hvað nýframkvæmdir varðar og fjárveitingar til samgöngumála?
Virðulegi forseti. Ástæðan fyrir því að ég spyr hæstv. ráðherra þessara spurninga og óska eftir svörum við er að fá að heyra hvað er að gerast í þessum málum en líka auðvitað breytingar sem gerðar voru við 2. umr. fjárlaga í desember síðastliðinn þar sem m.a. voru teknar 850 millj. kr. af framkvæmdalið Vegagerðarinnar og færðar í viðhaldsfé Vegagerðarinnar. Það er auðvitað ekki vanþörf á að gera það, sérstaklega núna að loknum vetri þar sem veður hafa verið válynd, mikill snjór og þíða inn á milli, mikill saltburður og aukin umferð sem hefur farið mjög illa með vegina, ásamt því að viðhald á vegum var ekki nægjanlegt á erfiðleikaárum okkar.
Samkvæmt því sem ég tel mig vita um útreikninga Vegagerðarinnar þá sýnist mér að „kassastaðan“, ef ég má nota það orð, um áramót sé þannig að ekki séu til nema 270 millj. kr. í upphafi þessa árs til nýframkvæmda í vegamálum. Það er eins og ég hef áður sagt sennilega Íslandsmet í að gera ekki neitt.
Virðulegi forseti. Mér er kunnugt um það að við höfum sett aðeins meiri pening í tengivegi sem við ætlum að malbika í öllum kjördæmum, en eins og ég segi sýnist mér staðan vera það alvarleg að það verði nánast ekkert um að vera.
Ég spyr líka hæstv. ráðherra: Hefur Vegagerðinni ef til vill verið bannað að bjóða út ný verk? Ég spyr vegna þess að við sem fylgjumst með málaflokknum sjáum að það er nánast ekkert af nýjum útboðum vegna samgönguframkvæmda. Ýmsar samgönguframkvæmdir sem eru í samgönguáætlun og átti að fara í verður ekki farið í eins og framkvæmdir við Strandaveg, Jökulsá á Fjöllum, Dettifossveg, Berufjarðarbotn, Reykjaveg í Biskupstungum, o.s.frv. Þetta eru alls sex verkefni sem átti að setja 2 milljarða í en mér sýnist, virðulegi forseti, miðað við mína útreikninga ef þeir eru réttir, að vegna þess hve lítið er lagt í þetta núna sé ekki til nema rétt (Forseti hringir.) um 10% af fénu hjá Vegagerðinni (Forseti hringir.) í upphafi þessa árs. Þetta er ástæðan, (Forseti hringir.) virðulegi forseti, fyrir þeim þremur spurningum sem settar eru fram.