eftirlit með gistirými.
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Þorsteini Sæmundssyni fyrir að taka þessa mikilvægu umræðu og þakka hæstv. ráðherra fyrir ágætissvör. Það er mikilvægt að efla eftirlit með gistirými því að við verðum að horfast í augu við að víða er rými eða íbúðir sem eru í svartri leigu til ferðamanna. Í greiningarvinnu sem gerð var í tengslum við húsnæðisvinnu í velferðarráðuneytinu fyrir nokkru síðan kom fram að mörg hundruð íbúðir á Reykjavíkursvæðinu eru í svartri leigu til ferðamanna. Aukið eftirlit mundi, að ég tel, fljótt skila sér í auknum tekjum til ríkissjóðs og gæti jafnvel orðið hvati fyrir þá húsnæðiseigendur sem eru í þessari starfsemi til að koma íbúðum og lausum gistirýmum í langtímaleigu. Þannig gæti framboð á leiguíbúðum á almennum markaði aukist, íbúðum gæti fjölgað og sú fjölgun gæti jafnvel lækkað leiguverð sem er til mikilla bóta.