144. löggjafarþing — 87. fundur,  13. apr. 2015.

ráðgjafarnefnd um verndun hella.

620. mál
[19:33]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Sigrún Magnúsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Náttúruverndarlög hafa verið til skoðunar í allan vetur í ráðuneytinu og með fjölmörgum hagsmunaaðilum, félagasamtökum o.s.frv., og ég held að það sé búið að vinna mjög gott starf í að skoða þau lög eins og okkur var falið á hv. Alþingi. Í X. kafla þeirra laga er ákvæði um sérstaka vernd tiltekinna vistkerfa og jarðminja og þar er náttúrlega talað um hraunhella undir þessari sérstöku vernd. En ég vona sannarlega að endurskoðun á þeim lögum komi fyrir Alþingi fyrr en síðar.

Það hefur engu verið skilað enn til mín frá þessari ráðgjafarnefnd þann tíma sem ég hef setið í ráðuneytinu, svo ég segi það alveg skýrt. Mér hefur skilist á formanni hennar að nefndin hafi kannski ekki verið eins virk í störfum sínum og hún hefði að mörgu leyti kosið að vera. Það er auðvitað alltaf mjög erfitt að vita hvað er rétt, að leggja mat á hluti og meta hvort eitthvað sé nákvæmlega rétta verkfærið er vissulega alltaf dálítið mikið mál. Um það erum við alltaf að fjalla um og velta vöngum en sannarlega og ég vil ítreka það, við viljum sannarlega að við höfum eitthvert slíkt verkfæri í höndunum og það sé öflugt og virkt. Þess vegna spyr maður sig: Var þarna eitthvað sem ekki gekk 100% upp? Nefndin hefur þó haldið eins og ég gat um áðan níu fundi og hitt félagasamtök og sinnt sínu verksviði. Meira get ég eiginlega ekki sagt um stöðu mála í augnablikinu.