144. löggjafarþing — 87. fundur,  13. apr. 2015.

búsetuskerðingar.

624. mál
[19:56]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Steinunn Þóra Árnadóttir) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin en verð þó að lýsa ákveðnum vonbrigðum með það að ég hefði gjarnan viljað sjá að verið væri að vinna meira og mig langar að segja markvissara með þennan hóp sem þarf oft að reiða sig á rosalega lágar upphæðir sér til framfærslu. Ég hef jafnvel heyrt tölur niður í 80 þús. kr. sem viðkomandi fær greitt frá Tryggingastofnun ríkisins og fær engar greiðslur frá fyrra búsetulandi.

Ég verð að lýsa yfir þeim áhyggjum að þetta tiltekna mál, þ.e. hlutfallsgreiðslur, fái ekki nógu mikið vægi í ágætri nefnd hv. þm. Péturs H. Blöndals og ég lýsi einnig yfir vonbrigðum með að bíða eigi með það að vinna þessi mál þar til nefndin skilar af sér.

Varðandi hina liðina tel ég — jú, gott og vel, Tryggingastofnun hefur milligöngu í þeim málum þar sem samningur er í gildi við búsetuland, en það virðist hins vegar ekki vera nóg miðað við það hversu hátt hlutfall fólks fær ekki greiðslurnar til sín, inn á sinn bankareikning. Ég vil því nota tækifærið til að hvetja ráðherrann til að taka fastar á þessum málum og koma þeim í betri farveg. (Forseti hringir.) Að mínu mati getur þetta ekki gengið svona til frambúðar. Við þurfum að tryggja því fólki sem hér um ræðir (Forseti hringir.) að það geti lifað við mannsæmandi lífskjör hvort sem það er með því að auka greiðslurnar úr okkar kerfi eða að leggja meira til (Forseti hringir.) til að tryggja að greiðslur erlendis frá skili sér.