búsetuskerðingar.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir orð hv. þingmanns sem ég lít á sem hvatningu til að vinna áfram í þessu máli. Ég treysti því að tillögurnar og nefnd hv. þm. Péturs H. Blöndals muni skila sér fljótlega til okkar. Í framhaldinu er stefnt að því að setja allan kraft í að fara að vinna í svokölluðum bótaflokkahluta í almannatryggingalöggjöfinni. Velferðarnefnd hefur verið að vinna að heildarendurskoðun sem snýr meira að tæknilegum útfærslum og ég reikna með að tillögur komi sem snúa að því. Sérstaklega, eins og ég nefndi, hefur framfærsluuppbótin verið mikið til umræðu í nefndinni og hvernig best sé að útfæra nýtt kerfi til framtíðar þannig að hægt sé að styðja við þá 52 þúsund lífeyrisþega hjá Tryggingastofnun.