störf þingsins.
Virðulegi forseti. Aðeins að vinnu okkar hér og því sem var sagt áðan af tveimur hv. þingkonum Framsóknarflokksins sem kvörtuðu yfir því að hér væri fólk að röfla um allt og ekkert á meðan mikilvæg mál lægju fyrir í þinginu. Hvaða mál eru það? Það eru ýmis mál sem við bíðum eftir en liggja einmitt alls ekkert fyrir þinginu. Húsnæðismálin mikilvægu, tvö, sem hafa ekki enn náðst út úr ríkisstjórn. Við erum bara að bíða og tölum þá saman á meðan þau koma ekki, þannig að ég vísa þessu algjörlega til föðurhúsanna sem kom fram áðan. Auk þess var verið að dylgja um einstaka þingmenn, að þeir væru ekki heiðarlegir í sannfæringu sinni um að boða hérna betri stjórnmál. Ég óska eftir því að það sé ekki gert héðan úr þessum ræðustól að dylgja um svona nema það sé þá tiltekið um hvern ræðir, endilega.
Annað atriði, ég ætlaði nú ekki að koma upp vegna þessa en það er þó tengt mál. Það er málið um náttúrupassann sem við ræðum í atvinnuveganefnd og fyrir liggur að það þarf að afgreiða, en um málið er svo búið að það er algjörlega óundirbúið af hendi ráðherra. Það er þannig að óeining er um það þvert á flokka og ljóst er að atvinnuveganefnd mun ekki geta afgreitt málið frá sér af því að það er enginn sammála því. Hvað eigum við þá að gera? Svona er staðan. Ég vil segja það hér áður en þingi lýkur að ég mun vísa því algjörlega til föðurhúsanna þegar ferðamannastaðir verða farnir að láta á sjá af því að ekki er veitt fjármagn í uppbyggingu þeirra vegna þess að ferðamannapassinn svonefndi er ekki afgreiddur. (Forseti hringir.) Það er ekki vegna þess að stjórnarandstaðan standi sig ekki, það er (Forseti hringir.) vegna þess að meiri hlutinn kemur illa undirbúinn hingað inn í þingsal. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)