144. löggjafarþing — 88. fundur,  14. apr. 2015.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

626. mál
[19:23]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það gleður mig að hv. þm. Birgir Ármannsson telji það jákvætt að nota þjóðaratkvæðagreiðslur í einhverjum tilfellum þegar um stórmál er að ræða eins og hv. þingmaður orðaði það. Þá velti ég fyrir mér nákvæmlega í hvaða tilfellum hann væri hlynntur þeim ef ekki í þessu máli. Nú langar mig aðeins að horfa til framtíðar því að tillagan sem við ræðum núna tilgreinir ákveðna dagsetningu og hún tilgreinir ákveðna spurningu. Greinargerðin, eftir því sem ég fæ best séð, bindur þetta ekki að neinu leyti og því kæmi til greina í kenningunni að breyta þessu með breytingartillögu.

Dagsetningunni mætti svo sem breyta. Texta spurningarinnar mætti svo sem breyta, gefum okkur það alla vega. Þá velti ég fyrir mér hvort hv. þingmaður væri hlynntur því að þetta mál, spurningin um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið, yrði sett í þjóðaratkvæðagreiðslu samhliða næstu alþingiskosningum, hvort hv. þingmaður teldi það vera vitrænna en þá hugmynd sem hann hefur gagnrýnt svo harðlega.

Þá vil ég nefna það sérstaklega, sem hv. þingmaður veit sjálfsagt, að þegar tillaga um að slíta viðræðum kom til á seinasta þingi söfnuðust 53.555 undirskriftir fyrir því að setja málið í þjóðaratkvæðagreiðslu. Það eru um það bil 22,5% kjörbærra manna. Þarna var mál sem Alþingi virtist ætla að afgreiða og ef það hefði verið afgreitt og þessar undirskriftir hefðu legið fyrir, hefði hv. þingmaður þá stutt það að það mál færi í þjóðaratkvæðagreiðslu? Og sérstaklega spyr ég hvort sú þjóðaratkvæðagreiðsla hefði þá getað átt sér stað samhliða næstu alþingiskosningum.