144. löggjafarþing — 88. fundur,  14. apr. 2015.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

626. mál
[19:30]
Horfa

Össur Skarphéðinsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Það hlýtur að vera grundvöllur okkar allra sem störfum að stjórnmálum að orð okkar skal efna eftir því sem hægt er. Í þeim kosningum sem háðar voru síðast kom algjörlega skýrt fram í aðdraganda þeirra að ákaflega margir höfðu áhuga á því að halda viðræðunum áfram. Töluvert stór hluti þeirra tilheyrði Sjálfstæðisflokknum. Forustumenn Sjálfstæðisflokksins á þeim tíma taldi ég standa andspænis því að geiri af flokknum kynni að sníðast af og verða að sjálfstæðri pólitískri einingu sem mundi jafnvel bjóða fram gegn þeim, þ.e. Sjálfstæðisflokknum. Við þær aðstæður lýsti formaður Sjálfstæðisflokksins því yfir að hann vildi að það yrði þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna. Hann gekk meira að segja svo langt að þegar hann hratt úr vör kosningabaráttu flokksins á Hótel Nordica 23. mars 2013 þá sagðist hann telja að heppilegra væri að slík þjóðaratkvæðagreiðsla færi fram á fyrri hluta kjörtímabilsins.

Í kjölfarið má segja að allir helstu frambjóðendur, allir oddamenn, hugsanlega utan einn, á listum þeirra, lýstu því yfir að þeir vildu þjóðaratkvæðagreiðslu um framhaldið. Ber ekki mönnum að taka mark á þessu? Þá vísar hv. þingmaður til stefnuskrár. En ber ekki mönnum að taka afstöðu út frá því sem þeir leggja fram í kosningabaráttunni? Forustumennirnir túlka stefnuskrána með þessum hætti.

Hv. þingmaður eða sumir þingmenn hafa sagt að þessi orð hafi ekki staðið í kosningabæklingi flokksins, en ég las það hins vegar á heimasíðu flokksins. Við þessar aðstæður hlýtur það a.m.k. vera hv. þingmanni pínulítið erfitt að flokkur hans skuli með svo afdráttarlausum hætti gefa loforð, fá fólk til þess að kjósa flokkinn (Forseti hringir.) á þeim grundvelli og síðan bak kosningum svíkja það. Er ekki hægt að kalla þetta svik?