þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég held að það sé ekki spurning að ef menn vilja að þetta mál fái einhvern endi verði þeir að fara þessa leið með þjóðinni á lýðræðislegum vettvangi. Þetta er prófsteinn á lýðræðislegan vilja flokkanna í dag. Lýðræði er eitthvað sem menn flagga oft á hátíðarstundum en svo þegar kemur að því að sýna það í verki með því að hleypa þjóðinni að, veita henni aðkomu að svona gífurlega stóru og umdeildu máli, verður oft lítið úr því. Sumir segja að þetta mál skipti sköpum fyrir hagsmuni þjóðarinnar og aðrir segja að það geti gjörbylt því samfélagi sem við búum við í dag og yfirráðarétti yfir auðlindum okkar, sjávarútvegi og stórri atvinnugrein eins og landbúnaði. Eigum við ekki rétt á því sem þjóð og samfélag að fá úr þessu skorið?