þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ef ómöguleikinn er þannig vaxinn að það sé þjóðin sem sé annarrar skoðunar en stjórnmálamenn sem eru við völd hverju sinni, hlýtur þá ekki að koma að því við kosningar að sá meiri hluti þjóðarinnar sem vill fá eitthvað annað en sitjandi stjórnvöld kjósi og nái vilja sínum fram? Ómöguleikinn verður þá aldrei nema tímabundinn. Það kemur að því að kjósendur lýsa vilja sínum í verki í atkvæðagreiðslu. Ég held að flokkar eins og Sjálfstæðisflokkurinn ættu nú gjarnan að hugsa um það ef þeir vilja veg síns flokks góðan. Ég hef kannski ekki miklar áhyggjur af framtíð Sjálfstæðisflokksins en ég held að hann gæti staðið frammi fyrir klofningi sem varla er til góðs fyrir þann flokk.