144. löggjafarþing — 88. fundur,  14. apr. 2015.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

626. mál
[22:07]
Horfa

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Já, þetta var skýrt. Þetta eru ágætar hugleiðingar hjá hv. þingmanni um hvaða mál eigi heima í þjóðaratkvæðagreiðslu og hver ekki. Þjóðaratkvæðagreiðslur eru mjög mikilvægar og flokkurinn minn, Samfylkingin, hefur ávallt verið fylgjandi því að auka beint lýðræði á Íslandi. En að sjálfsögðu þurfum við að hafa skýrar reglur um það hvers konar mál geta farið í þjóðaratkvæðagreiðslu, ég held að við séum öll sammála um að mannréttindamál eiga til dæmis ekki heima í þjóðaratkvæðagreiðslum því að þar getur verið um að ræða hópa í mjög veikri stöðu sem auðvelt er að byggja upp einhvers konar andúð gegn. Fjárhagsmál varðandi skattlagningu og slíkt eiga ekki heima í þjóðaratkvæðagreiðslu. Verið hefur mikið ákall um aukna möguleika á þjóðaratkvæðagreiðslum hér eftir hrun og hafa þær líka verið þó nokkrar síðan þá.

Þá kemur að stjórnarskránni sem mikil vinna var lögð í að semja á síðasta kjörtímabili. Hún var unnin í þinginu og fór í þjóðaratkvæði. Það grátlega er að okkur tókst ekki að klára það mál, ekki einu sinni ákvæðið um þjóðaratkvæði. Ég held að umræðan um þetta mál sem við ræðum á þessari stundu, þetta gríðarlega mikilvæga framtíðarmál, sýni okkur að það hlýtur að vera forgangsatriði fyrir Alþingi að tryggja að í stjórnarskrá komi skýr ákvæði um bindandi þjóðaratkvæðagreiðslur.