þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka andsvarið. Ég minni hv. þingmann á það að í kosningunum 2009 var umsókn að Evrópusambandinu talsvert mikið til umræðu og eins og hefur komið fram í umræðunni í dag voru margir flokkar í það minnsta jákvæðir fyrir því að sækja um.
Það er eiginlega með ólíkindum hvað margt hefur breyst síðan þá. Ein af ástæðunum fyrir því að ég styð þessa tillögu til þingsályktunar er þessi ólíkindalega staða. Á síðasta ári var lögð fram tillaga um að draga umsóknina til baka þvert ofan í kosningaloforð og í ár var sent frekar illskiljanlegt bréf án þess að það væri borið fyrir þingið. Við erum eiginlega í þeirri stöðu að pólitíkin (Forseti hringir.) virðist ekki að valda verkefninu.