þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka þingmanninum svarið. Það væri áhugavert að vita hver helstu málin eru að mati hans af því við sem veltum þessu fyrir okkur hljótum öll að hugsa um hvað það er sem þjóðin gæti helst tapað á og ég held að valdaframsalið verði alltaf eitthvað. Það er alltaf einhver miðstýring í svo stóru batteríi sem Evrópusambandið er, þannig að ég held að ekki séu allir málaflokkar undir þar sem við getum ráðið okkur. En hvað heldur þingmaðurinn um það sem hér hefur aðeins verið rætt varðandi undanþágur og þá stóru kafla sem gjarnan hefur verið rætt um, sjávarútveg, landbúnað og hráar afurðir og annað því um líkt? Er það eitthvað sem við mundum geta sætt okkur við? Nú er verið að kalla eftir því að við fáum að flytja inn matvöru sem lútir t.d. ekki sömu lögmálum og íslenskir framleiðendur þurfa að (Forseti hringir.) gangast undir varðandi dýraverndunarlög. Hér er verið að krefjast þess að hægt verði að flytja inn (Forseti hringir.) miðað við ESB-löggjöfina, en við höfum sett stífari löggjöf en það.