144. löggjafarþing — 90. fundur,  16. apr. 2015.

leyniskýrslur fyrir kröfuhafa.

[10:49]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F):

Virðulegur forseti. Ég held að það væri mjög æskilegt að þingnefnd og raunar sem flestir kynntu sér efni þessara skýrslna. Þó að sumar þeirra seu kirfilega merktar „confidential“ held ég að þær eigi erindi við þingmenn sem eru að meta þessi mál og við hvað er að fást, þannig að ég teldi æskilegt að menn yrðu sér úti um þessi gögn. Það ætti ekki að vera mikið vandamál enda, eins og hv. þingmaður nefndi áðan, eru þeir sem hafa séð um utanumhald þessara mála mörgum þingmönnum vel kunnir og hæg heimatökin að leita eftir gögnunum.