stjórn veiða á Norðaustur-Atlantshafsmakríl.
Virðulegi forseti. Ef við viljum fara í útgerð þurfum við að kaupa af þeim sem fyrir eru. Það er alveg rétt og þannig hefur það verið frá árinu 1991 þegar framsalið var lögfest. (Gripið fram í.) Sennilega var það eitt gæfuríkasta spor sem við höfum stigið í íslenskum sjávarútvegi með tilheyrandi hagræðingum og bættri afkomu. Með þeim hætti hafa 95% aflaheimilda í landinu skipt um hendur, þannig að það eru nánast allir búnir að kaupa. (Gripið fram í.)
Nú erum við að byrja á nýjum stofni og þá gilda lög í landinu. Mér fannst hv. þingmaður fara frá tveimur hliðum í málið, eins og við gætum þá bara ákveðið að gera eitthvað allt annað núna. Ég fór yfir það í ræðu minni áðan að það er ekki hægt ef við ætlum að fara að gildandi lögum. Þá var hv. þingmaður með þá lausn (Forseti hringir.) að við mundum gera þetta með öðrum hætti og innkalla aflaheimildir á einhverjum ákveðnum árafjölda og selja þær aftur. Það getur löggjafinn sett sérlög um og hefur það svo sem verið rætt í svokallaðri fyrningarleið Samfylkingarinnar en sú leið var ekki farin á valdatíma þeirra.