144. löggjafarþing — 90. fundur,  16. apr. 2015.

heimildir lögreglu til símhlerana.

[14:00]
Horfa

Jóhanna María Sigmundsdóttir (F):

Hæstv. forseti. Heimildir til hlerunar eru einungis veittar með úrskurði dómstóla að undangenginni kröfu lögreglu þar um og að uppfylltum tilteknum lagaskilyrðum. Það er í undantekningartilfellum sem hlerunum er hafnað enda ríkar ástæður fyrir beiðnum um þær. Ákvarðanir um leyfisveitingar fyrir hlerunum eru teknar af dómurum. Það er enginn sem er að fara að hlera eitt né neitt „af því bara“. En þegar við lítum til landanna sem standa okkur næst, svo sem Danmerkur og Noregs, er kannski spurning hvort við getum tekið eitthvað úr þeirra löggjöf yfir til okkar.

Í Danmörku þarf leyfi dómara fyrir hlerunum á símum og er sakborningi skipaður lögmaður sem gætir hagsmuna hans og skal lögmaðurinn fá tækifæri til að tjá sig um kröfuna. Leyfið miðast við ákveðið símanúmer en ekki persónu, er tímabundið og brotið þarf að varða þá allt að sex ára fangelsi hið minnsta.

Í Noregi eru ákvæðin svipuð um símhlustun. Þá er gert ráð fyrir að grunur þurfi að vera um háttsemi er varði tíu ára fangelsi hið minnsta en sakborningi er skipaður lögmaður sem getur kært ákvörðun dómstólsins og tímarammar gilda. Að sjálfsögðu gilda í báðum löndum hegningarlög þar að lútandi.

Þær hleranir sem framkvæmdar eru í Danmörku og Noregi eru ívið fleiri en hérlendis en á Alþingi 2010–2011 var lögð fram þingsályktunartillaga um að leyfa forvirkar rannsóknir. Þá var helst talað um slíkt þar sem grunur léki á að um væri að ræða mansal, fíkniefnainnflutning, aukin umsvif skipulegra glæpagengja og hryðjuverkaógnir. Þó að við förum ekki út í það að gefa forvirkar rannsóknir frjálsar verðum við að athuga að umhverfið hefur breyst. Það færist meiri harka í glæpi og með auknum tækniframförum verða til ný tækifæri. Sem borgari vil ég auðvitað að lögregla hafi eitthvert vald til að verja íbúa landsins fyrir hlutum sem við viljum oft ekki vita af, hvað þá lenda í, en persónuvernd þarf þó alltaf að vera í fyrirrúmi í þessum tilvikum.