stjórn veiða á Norðaustur-Atlantshafsmakríl.
Frú forseti. Sjáum hvort við getum rakið okkur í gegnum þau grunngildi sem hljóta að þurfa liggja til grundvallar þegar við ræðum um sameign þjóðarinnar og um lagasetningu almennt.
Ef við byrjum á byrjuninni er settur á kvóti til að tryggja það grunngildi að hægt sé að nýta þessa sameiginlegu auðlind á sjálfbæran hátt. Réttlætingin þar er að setja kvóta en það hefði náttúrlega verið hægt að fara aðra leið. Það hefði verið hægt að fara eins konar sóknardagaleið en markmiðið eða grunngildið er sjálfbærni, að fara þá leið að setja kvóta og takmarka þar af leiðandi hversu mikið má veiða á hverju ári.
Á móti kemur að veitt er einkaleyfi, ekki mega allir landsmenn lengur sækja í þessa sameiginlegu auðlind heldur aðeins ákveðinn hópur. Það var farin sú leið að skoða þrjú ár af veiðireynslu og veita þeim þetta einkaleyfi, þennan kvóta. Þetta einkaleyfi var ekki tímabundið. Það var á grundvelli þess að menn hefðu fjárfest, og það verður að vera samhengi milli fjármagns, fjárfestinga og tíma. Svo er ekki í þessu tilfelli og kvótakerfið hefur verið eins og það er í marga áratugi.
Skoðum annað grundvallaratriði hérna sem það að veita tímabundið einkaleyfi hefur neikvæð áhrif á, sem eru jafnræðissjónarmiðin. Þegar kemur að sameiginlegri nýtingu auðlindar hlýtur jafnræði að vera grunngildi sem við þurfum að horfa til við lagasetningu. Einkaleyfið brýtur klárlega á jafnræðinu, og það verður að gæta þess að samhengi sé þarna á milli. Ef um væri að ræða einhvers konar tímabundið einkaleyfi fyrir þá sem hefðu fjárfest og það væri í samhengi við fjárfestinguna held ég að fólk gæti alveg sætt sig við það og sagt: Já, þetta er sanngjarnt. Sanngirni verður að vera partur af þessum pakka ef við ætlum að geta náð öðru gildi, sem ég held að langflestir séu sammála um, að það ríki þjóðarsátt um stjórn fiskveiða í landinu. Ef hún ríkir ekki mun það alltaf hafa neikvæð áhrif á annað grunngildi, sem er mikilvægt, og það er fyrirsjáanleiki. Meðan ekki ríkir þjóðarsátt um stjórn fiskveiða er ekki fyrirsjáanleiki í greininni, nema reynt sé að innleiða fyrirsjáanleikann á öðrum forsendum. Þetta hefur alla vega neikvæð áhrif á fyrirsjáanleikann. Það gæti alltaf gerst að kerfinu væri gjörbylt ef ekki ríkir þjóðarsátt, þá er sá þrýstingur alltaf til staðar.
Það er mögulega hægt að ná fyrirsjáanleika á öðrum forsendum. Það á að gera í þessu frumvarpi en með því að fórna algjörlega sanngirnissjónarmiðinu, jafnræðissjónarmiðinu, með því sem segir í 3. gr., og ég ætla bara að segja það á mannamáli: Úthlutun á þessum nýja kvóta, og þetta er ekki gamli kvótinn, þetta er nýr kvóti sem er verið að úthluta, það er verið að takmarka aflann og úthluta honum. Nú höfum við tækifæri til að fara aðra leið við stjórn fiskveiða en þessa, með því að setja annars konar lög. En nei, það á að fara gömlu leiðina og það á ekki aðeins að fara þá gömlu leið að úthluta afla heldur er úthlutað og það fest, það má ekki segja því upp í sex ár. Menn fá kvóta og það má ekki segja upp í sex ár.
Um leið og búið er að festa það eru menn skaðabótaskyldir, þannig að ef ný ríkisstjórn tekur við og vill breyta kerfinu getur hún það ekki án þess að verða skaðabótaskyld. Það er búið að binda hendur löggjafans inn í framtíðina. Það verður að hafa til hliðsjónar. Það þýðir ákveðinn fyrirsjáanleika í greininni en það er búið að tryggja kerfi sem ekki er þjóðarsátt um og menn eru mjög ósáttir með, það er ekki sanngirnissjónarmið þarna, það er ekki jafnræðissjónarmið.
Þetta er mjög snjallt útspil hjá stjórnarflokkunum sem báðir hafa verið varðmenn þess kvótakerfis sem hefur verið við lýði. Þetta er mjög snjallt útspil því að þeir geta réttlætt fyrirsjáanleikann. Auðvitað viljum við fyrirsjáanleika. En þeir réttlæta hann á ójafnræðisgrundvelli og ósanngirnisgrundvelli. Ég held að flestir landsmenn væru alveg tilbúnir í að kvótinn yrði leigður út á markaðsgrundvelli til sex ára, jafnvel til tíu ára, jafnvel heila kynslóð. Það mundi tryggja fyrirsjáanleika og það mundi tryggja markaðsverð, ekki eitthvert verð sem stjórnmálamenn ákveða, markaðsverð fyrir þessa sameiginlegu nýtingu.
Ef við höldum áfram með gildin er fyrirsjáanleiki klárlega mikilvægur vegna þess að hann eykur skilvirknina, fyrirsjáanleikinn er nauðsynlegur fyrir hana. Við aukum hámarkshagkvæmni sem tryggir síðan hámarkshagnað af auðlindinni og við viljum það. En þá komum við aftur að því að ekki er verið að tryggja að hámarkshagnaður eða hámarksarður af greininni, nýtingin á sameiginlegri auðlind, skili sér með sanngjörnum hætti til eigendanna, sem er þjóðin.
Það er annað atriði í þessu frumvarpi sem hefur að gera með framseljanleikann, sem verður að taka tillit til. Það að hafa þennan kvóta framseljanlegan eykur skilvirkni, en það skapar ákveðin vandræði inn í framtíðina. Menn réttlæta í dag að ekki sé hægt að taka kvótann af þeim sem höfðu keypt hann, það er það sem framseljanleikinn gerir, hann býr til kringumstæður þar sem menn kaupa kvóta. Menn geta þá selt sig út úr greininni og við þekkjum alla þá sögu.
Um leið og menn eru komnir með framseljanleikann eykur það skilvirkni en þá er komið upp ákveðið vandamál sem þarf að leysa inn í framtíðina ef við ætlum að færa þetta aftur til þjóðarinnar, því að þá þarf einhvern veginn að sýna þeim sanngirni sem hafa keypt kvótann, sem ég held að flestir séu sammála. Það gæti verið eitthvað eins og menn eru að reyna að gera í dag með þann kvóta sem þegar hefur verið úthlutað og seldur, ekki makrílkvóta sem við gætum farið aðra leið með núna heldur kvóta sem hefur þegar verið úthlutað og hann seldur, þá mundi þurfa að veita þeim einkaleyfi í einhvern ákveðinn tíma. Það sem er í boði að segja núna við þá sem hafa verið að veiða er: Þetta er það sem þið hafið fjárfest. Við ætlum að setja takmarkanir á þetta og þið megið bara veiða ákveðið mikið o.s.frv. en á móti fáið þið einkaleyfi í tíma sem er í samræmi við þær fjárfestingar sem þið hafið lagt út í.
Eftir það er þetta eign þjóðarinnar og nýtingarréttinum er úthlutað, hann er seldur á frjálsum markaði til sex ára, átta ára, tíu ára, kannski til 20 ára, til að tryggja sjálfbærni. Með þeirri leið gætum við sýnt þeim sanngirni sem hafa verið að veiða og fjárfesta og við gætum tryggt sjálfbærni, fyrirsjáanleika og jafnvel þjóðarsátt.
Það er annað sem þarf að taka tillit til í frumvarpinu. Í síðustu málsgrein 1. gr. segir:
„Verði ósamræmi milli ákvæða þessara laga og annarra laga á sviði fiskveiðistjórnar skulu þessi lög gilda.“
Ef þessi lög, í meðförum þingsins, stangast á við aðrar greinar á einhverjum forsendum, t.d. 1. gr. laga um stjórn fiskveiða, sem kveður á um þjóðarréttinn, gæti það grafið undan því. Ég bið þingmenn að fylgjast með því og vera mjög meðvitaðir um það.