144. löggjafarþing — 90. fundur,  16. apr. 2015.

stjórn veiða á Norðaustur-Atlantshafsmakríl.

691. mál
[15:51]
Horfa

Áslaug María Friðriksdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir svarið og það að hún viðurkenni að henni hafi hlaupið kapp í kinn, þótt það hafi reyndar gerst aftur, held ég, í lok ræðu hennar eða svari rétt áðan.

Það er auðvitað alveg rétt að þótt fólk leyfi sér að segja að þetta skili engu samfélagsins er það engan veginn svo, það skilar milljörðum til samfélagsins og miklum fjölda starfa og alls kyns afleiddum störfum, nýsköpun og öðru slíku, sem má ekki vanmeta. Ég held að það sé aðalatriði í því sem ég vildi koma hér að. Mér finnst skrýtið að heyra umræðuna alla á neikvæðu hliðinni, um að menn sjái ofsjónum yfir þeim tekjum sem sjávarútvegsfyrirtækin velta, en skattarnir sem þau greiða eru samt einmitt (Forseti hringir.) grundvöllur þess að sé hægt að greiða hérna ágætislaun.