stjórn veiða á Norðaustur-Atlantshafsmakríl.
Virðulegi forseti. Ég ætla að byrja á því að lesa 34. gr. í frumvarpi stjórnlagaráðs til stjórnarskipunarlaga, með leyfi forseta:
„Auðlindir í náttúru Íslands, sem ekki eru í einkaeigu, eru sameiginleg og ævarandi eign þjóðarinnar. Enginn getur fengið auðlindirnar, eða réttindi tengd þeim, til eignar eða varanlegra afnota og aldrei má selja þær eða veðsetja.
Til auðlinda í þjóðareign teljast náttúrugæði, svo sem nytjastofnar, aðrar auðlindir hafs og hafsbotns innan íslenskrar lögsögu og uppsprettur vatns- og virkjunarréttinda, jarðhita- og námaréttinda. Með lögum má kveða á um þjóðareign á auðlindum undir tiltekinni dýpt frá yfirborði jarðar.
Við nýtingu auðlindanna skal hafa sjálfbæra þróun og almannahag að leiðarljósi.
Stjórnvöld bera, ásamt þeim sem nýta auðlindirnar, ábyrgð á vernd þeirra. Stjórnvöld geta á grundvelli laga veitt leyfi til afnota eða hagnýtingar auðlinda eða annarra takmarkaðra almannagæða, gegn fullu gjaldi og til tiltekins hóflegs tíma í senn. Slík leyfi skal veita á jafnræðisgrundvelli og þau leiða aldrei til eignarréttar eða óafturkallanlegs forræðis yfir auðlindunum.“
Ástæðan fyrir því að ég nefni þetta í þessari ræðu er til að halda því til haga að hér hefur um árabil verið umræða um það hvernig við ætlum að haga sjávarútvegsmálum á Íslandi og er þeirri umræðu langt frá því lokið. Einnig finnst mér mikilvægt að ekki hafa allir gleymt þessu frumvarpi, sem titlað var Gleym mér ei, sem var nauðsynlegt að því er virðist, og ekki hafa allir gleymt því að það þurfi og eigi að breyta því hvernig við hugsum um sjávarútveginn og gildir þá engu hverjar hefðirnar eru og álíka.
Umræðurnar um frumvarpið sem við ræðum hér hafa verið fróðlegar og áhugaverðar að mínu mati. Ég verð að viðurkenna að ég er óttalegur nýgræðingur þegar kemur að sjávarútvegsmálum almennt. Ég hef lært mjög mikið mjög hratt um þetta mál en er þó ansi langt frá því að vera nokkurs konar sérfræðingur í þeim efnum. Ég vona því að þessi umræða, og sérstaklega 2. umr., verði ekki aðeins mér heldur líka áhorfendum til mikils fróðleiks.
Það eru nokkrir hlutir sem stinga mig aftur og aftur í umræðunni. Það sem stingur mig helst eru hinar siðferðislegu réttlætingar fyrir því að láta þennan kvóta endurgjaldslaust í hendurnar á þeim sem hafa veiðireynslu. Nú hafa menn oft heyrt rök á borð við hagkvæmni, að hagkvæmni sé það mikilvægasta af öllu. Vissulega er hagkvæmni mikilvæg en þau rök trompa ekki öll önnur. Það eru aðrir þættir í samfélaginu sem skipta líka máli. Það skiptir til dæmis máli að nýliðun geti átt sér stað. Það skiptir máli að kerfið sé sanngjarnt, í það minnsta á einhvern hátt, og að mati margra, þar á meðal mín, skiptir máli að það sé einhvers konar jafnaðarhugsjón á bak við, ekki endilega sem nein tromprök heldur en vissulega má ekki henda því út sem fullkomnu aukaatriði sem engu máli skipti. Hagkvæmnisrökin eiga því ekki að trompa allt en það er einmitt vegna þess að ég hef nánast einungis heyrt hagkvæmnisrökin áður sem ég hvái svolítið þegar kemur að siðferðislegu rökunum.
Siðferðislegu rökin afmarkast, eftir því sem ég fæ best séð, út frá tveimur þáttum. Annars vegar er það að þeir sem hafa veiðireynsluna hafi lagt út í gríðarlegar fjárfestingar og eigi þess vegna skilið að fá þennan kvóta í kjölfarið, sérstaklega með hliðsjón af 5. gr. laga sem ég man ekki hvað heita en eru nr. 151/1996, vegna þess að þeir sem hafi veiðireynsluna hafi gefið sér í mörg ár að þeir muni fá þennan kvóta að launum fyrir það að vera fyrstir til að öðlast þessa veiðireynslu. Mér þykja þau siðferðislegu rök ekki mjög sannfærandi því að hafa menn hafa væntanlega veitt þennan fisk og selt og grætt á því. Það er gott og blessað því að maður vill auðvitað að fólk græði á því að gefa fólki að borða, maður vill að fólk græði á því að gera samfélaginu gott. En að fá aukabónus fyrir að vera fyrstur, sérstaklega þegar maður lítur á hvaða fyrirtæki þetta eru, ég sé ekki siðferðisrökin á bak við það, ég sé ekki sanngirnisrökin á bak við það þannig að ég gef voða lítið fyrir það.
Ég fæ ekki séð af samtölum mínum við þá sem vita mun meira um þetta en ég, sem eru mjög margir, að það hafi þurft að umturna því hvaða tæki og tól og veiðar menn nota til að veiða makríl. Komið hefur fram í ræðum að menn komust að því þegar makríllinn gekk inn í lögsöguna að hægt væri að veiða hann á ýmsan hátt og menn hafa verið að þróa sig áfram í þeim efnum. Það er gott og blessað en undirstrikar að það er ekki eins og við höfum þurft að skipta út skipaflotanum til að veiða makrílinn. Ég skil því ekki alveg hvaða skaði það er sem sjávarútvegurinn á að verða fyrir, sem hann á væntanlega að geta kært ríkið fyrir, ef ekki verður farin sú leið sem hér er lögð til að verði farin. Ég skil ekki heldur hvers vegna ekki er búið að kæra ríkið, eftir því sem ég fæ best séð, fyrir að hafa ekki sett þessi lög enn þá. Hvers vegna ekki? Mér sýnast allar röksemdir fyrir því að gera það núna ekki vera mjög sterkar. En síðast en ekki síst, og það er kannski aðalatriðið í þessu, eða ég hallast alla vega að því, erum við að tala um fiskveiðistofn sem er nýr á Íslandi, hann er ófyrirsjáanlegur og hann hefur verið kallaður engispretta hafsins af því að hann étur ofboðslega mikið. Í ljósi þess að við vitum ekki hvar stofninn verður eftir örfá ár, hann er nýtilkominn og að því er virðist erum við enn þá að þróa leiðina til að veiða hann, þykir mér hálfósannfærandi, svo ekki verði fastar að orði kveðið, að tala um fyrirsjáanleika. Við verðum að horfast í augu við þá umhverfislegu staðreynd að það er ekki fyrirsjáanleiki í þessari grein þegar kemur að makríl. Það er þannig og það er ekki ákvörðun okkar sem ræður því. Það eru náttúruöflin sem ráða því, hvað sem tautar og raular. Ég sé því satt best að segja ekki mikla þörf á lagalegum fyrirsjáanleika í þeim efnum á meðan hinn lífkerfislegi fyrirsjáanleiki er svo gott sem enginn, hann er afskaplega lítill.
Hér kemur punktur sem ég vona að ég sé ekki algerlega á villigötum með og það er verðmæti kvótans þegar hann hefur verið inntur af hendi. Segjum sem svo að þetta frumvarp verði að lögum og þeir sem eru með veiðireynsluna fá þennan kvóta í hendurnar. Kvótinn er þá á ákveðnu virði, segjum 100 milljarðar í heild eða eitthvað því um líkt, sem er reyndar mjög varlega áætlað eftir því sem ég fæ best séð miðað við aflamarkið og þorskígildið. Ég velti fyrir mér hvað gerist síðan þegar komnir eru 100 nýir milljarðar í efnahaginn, sem er það sem gerist óhjákvæmilega með þessu, þegar það koma 100 milljarðar af nýjum verðmætum, sumir mundu segja nýjum peningum og það er hægt að líta þannig á ef maður vill vera opinn með það: Hvað gerist þegar eða öllu heldur ef makríllinn fer eitthvað, vegna þess að við vitum ekkert hvað verður um hann? Þá höfum við orsakað frekar stóra sveiflu í efnahagnum, sem mér finnst líka svolítið hættulegt. Þess vegna tek ég undir með hv. þm. Kristjáni L. Möller og fleirum sem hafa sagt að þetta sé í það minnsta ekki tímabært. Ég held að við vitum ekki nógu mikið um það hvað verður um makrílinn og hvernig þetta á eftir að þróast til að geta tekið svona ákvörðun á þessum tímapunkti. Í allra skásta falli erum við að búa til 100 milljarða plús sem við vitum ekkert hvað verður um á næsta ári. Ég legg til að það skipti máli í þeim raunveruleika sem íslenskur efnahagur er. Þess vegna eigum við frekar að reyna að sjá hvað verður með reynslunni og sérstaklega með hliðsjón af því að geta brugðist öðruvísi við í framtíðinni ef tækifæri verður til þess, sem ég tel reyndar alveg að verði. Ég tel að hægt sé að breyta 5. gr. laga nr. 151/1996 og ef einhver vill kæra ríkið fyrir það að Alþingi breyti lögum má fara inn á það mín vegna. Ég tel ekki að við eigum að vera líta á þessi mál núna, við eigum að vera að horfa á 34. gr. í frumvarpi stjórnlagaráðs til stjórnarskipunarlaga, við eigum að vera að horfa á hvernig við ætlum að fara með auðlindina og auðlindir almennt í grundvallaratriðum. En það allra skásta sem ég get sagt um þetta er að það er ótímabært og að mínu mati að hluta til óábyrgt að vera að búa til þennan kvóta úr þessu á þessum tímapunkti, með hliðsjón af því að við vitum ekkert hvað verður í framtíðinni. Þá er ég að reyna að vera eins jákvæður og ég mögulega get gagnvart þessu, sem er erfitt.
Ég ætla að spara frekari vangaveltur um þetta þar til í 2. umr. Ég vænti þess að hún verði töluverð vegna þess að þetta er grundvallaratriði sem við erum að ræða hérna, eða öllu heldur einkenni af grundvallaratriði. Þetta eru sérlög vegna þess að það eru sérstakar aðstæður fyrir hendi. Þess vegna finnst mér fullkomlega við hæfi að við ræðum ítarlega grunninn að því sem við erum að byggja þessar ákvarðanir á.
Að lokum legg ég til að fundir fastanefnda Alþingis verði að jafnaði opnir.