144. löggjafarþing — 90. fundur,  16. apr. 2015.

stjórn veiða á Norðaustur-Atlantshafsmakríl.

691. mál
[16:34]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég ætla að byrja á því að svara varðandi smábátana, af því að ég tel að það skipti svo miklu máli. Þar er um að ræða vistvænar veiðar og þegar við höfum verið að tala um fyrirsjáanleikann, sem hafa verið rök fyrir þessu máli, þá velti ég því fyrir mér hvort þetta sé raunverulegur fyrirsjáanleiki af því að við vitum svo lítið um makrílinn. Við vitum ekkert hvort hann verður hér við land, hvort hann verður nær eða fjær, næstu sex árin, ekki frekar en við vitum um þorskinn á hverju ári og þurfum að fara í rannsóknir til að finna út úr því.

Varðandi arðsemina þá hefur það kannski komið fram og liggur fyrir í frumvörpum og við tölum um veiðigjöldin á eftir. Að mínu viti á að horfa til ákveðinnar þrepaskiptingar þegar talað er um veiðigjöld. Ég er ekki með tölur í kollinum um arðsemi eigin fjár þegar kemur að því hvað útgerðin eigi að borga, stórútgerðin, en við Vinstri græn höfum haft þau sjónarmið uppi, í ljósi þess hve útgerðin stendur vel, að hún sé aflögufær, að hún geti greitt meira en hún hefur verið að gera. Við sýndum það með okkar lagasetningum sem við töluðum jafnframt um að hefði mátt lagfæra og aðlaga þegar reynsla hefði fengist.

Mig langar að lokum að segja, af því að þetta byggist svolítið á því máli sem hér hefur verið rakið, að útgerðin hafi stefnt ríkinu: Ég mundi vilja láta á það reyna í staðinn fyrir að guggna og telja það eina af forsendunum fyrir því að hlutdeildarsetja.