144. löggjafarþing — 90. fundur,  16. apr. 2015.

veiðigjöld.

692. mál
[17:23]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegi forseti. Fyrst vil ég nefna að gefnu tilefni að það er auðvitað mjög mikilvægt að stór mál sem koma til þingsins fái góðan tíma til umfjöllunar og málsmeðferðar. Það eru mörg stór mál að koma til þingsins nú á þessum tíma sem munu krefjast mikillar vinnu og yfirlegu í nefndarstarfinu. Því nefni ég þetta að ég vil að við munum það sem nú erum í meiri hluta á þingi að við gagnrýndum mjög ríkjandi stjórnvöld á síðasta kjörtímabili fyrir að koma seint fram með stór mál. Það veldur mér nokkrum áhyggjum, í þeim stóru málum sem eru að koma til okkar nefndar núna, hv. atvinnuveganefndar, að tíminn til aflögu er ekki mikill, en við munum reyna að gera okkar besta. Mikil samstaða hefur verið um það í nefndinni að vinna vel og vel brugðist við því að aukafundir séu haldnir fyrir utan hefðbundna fundi. En þetta er auðvitað hvatning til ráðherranna og mér fannst nú eiginlega taka steininn úr þegar ráðherra í ákveðnu ráðuneyti var farinn að senda orkustykki til embættismanna í öðru ráðuneyti til að hvetja þá til öflugra starfa, orkustykki sem hefðu kannski í ljósi þessa verið betur nýtt til heimabrúks í því að klára málin fyrr.

Að þessu sögðu þá að veiðigjöldum. Með þeim eins og í annarri skattlagningu er fetuð ákaflega viðkvæm og fín lína. Við erum að tala um burðaratvinnugrein í íslensku samfélagi sem við skattleggjum umfram aðrar atvinnugreinar að þessu leyti. Það hefur verið ákveðinn samhljómur í því að ekkert óeðlilegt sé við að við skattleggjum þá grein umfram aðrar greinar í ljósi þess að þar er um að ræða nýtingu á takmarkaðri auðlind sem er í eigu þjóðarinnar. Þetta á sér nokkuð langa sögu. Það er komið á annan tug ára síðan auðlindanefndin svokallaða komst að þeirri niðurstöðu. Deilt hefur verið síðan um það hversu há sú skattlagning eigi að vera.

Við sáum áhrifin af þessari skattlagningu birtast mjög skýrt þegar tekið var til við breytingar og stokkað upp í þeim veiðigjöldum sem höfðu verið lögð á, eiginlega stokkað upp og gefið upp á nýtt. Þá er ég að vitna til þeirra breytinga sem við gerðum þegar við lækkuðum hlutfallslega veiðigjöld á bolfisk en hækkuðum hlutfallslega á uppsjávarfyrirtæki. Í dag getum við auðveldlega séð afleiðingarnar sem urðu af þeirri einu breytingu. Hún varð til þess að fjárfesting fór af stað aftur í bolfiski. Hún hafði stoppað vegna þess að veiðigjöldin voru þar einfaldlega of há. En hún hefur líka haldið áfram í uppsjávargeiranum, sem betur fer. Það tókst að stilla þetta þannig af að miklar fjárfestingar hafa farið af stað í sjávarútvegsgeiranum á til þess að gera ekki löngum tíma, mestu fjárfestingar sem við höfum séð í mjög langan tíma. Það er auðvitað vísbending um að við séum á réttri leið. Á sama tíma og við leggjum aukagjöld á greinina höfum við samt sem áður ekki skert getu hennar til að fara í nauðsynlegar fjárfestingar til að viðhalda samkeppnisstöðu okkar sem er mjög hörð. Við erum í mjög harðri samkeppni á erlendum mörkuðum.

Það verður verkefni nefndarinnar að fara yfir frumvarp ráðherra og meta þessa stöðu. Það eru þó nokkrar hækkanir í frumvarpinu á einstakar tegundir en eins og hæstv. ráðherra kom inn á byggir frumvarpið á sömu forsendum og við notuðum á síðasta ári. En við vitum öll sem höfum fylgst með þessu að það er vandi varðandi gagnasöfnunina sem við byggjum framtíðarálagningu veiðigjalda á. Ég veit að hæstv. ráðherra þekkir það hvað manna best og þess vegna bregst hann við með breytingum í frumvarpinu varðandi þá gagnasöfnun, sem er mjög gott, en við vitum að þær forsendur sem við höfum verið að nota og þau gögn sem við höfum verið að nýta eru ekki hugsuð í þessum tilgangi. Þannig eru ákveðnar breytingar í hagstofugögnum núna komnar til af gengisbreytingum og birgðabreytingum sem með sömu aðferðafræði kalla fram þó nokkra hækkun á ákveðnum tegundum. Þetta þurfum við að fara yfir og sjá hver viðbrögðin eru og það krefst tíma þegar vandamálið er að við erum alltaf að vinna með svolítið gömul gögn. Það er kannski of langt mál að fara út í það og svo sem vel kveðin vísa hér sem hefur oft farið fram umræða um. En í frumvarpinu er brugðist við því af hálfu hæstv. ráðherra og það er mjög gott.

Fjölbreytni í sjávarútvegi hefur verið hér aðeins til umræðu og ég held að hún sé mjög mikilvæg. En að sama skapi vitum við að of há veiðigjöld leiða af sér samþjöppun og það er ákveðin samþjöppun að eiga sér stað. Það er kannski óhjákvæmilegt að hagræðing haldi áfram á þessum vettvangi en það er að mínu viti mjög mikilvægt að viðhalda fjölbreytileika kerfisins. Það getur vel verið að með því náum við ekki fram einhverri hámarkshagkvæmni skoðað út frá rekstri á hverja einingu í kerfinu en það koma mörg sjónarmið önnur þar að. Við höfum talað um byggðasjónarmið og atvinnusjónarmið o.s.frv., en ekki síður það sem auðlindahagfræðingar okkar hafa m.a. nefnt að fjölbreytileiki íslensks sjávarútvegs er hluti af því hvað hann er fljótur að aðlaga sig breyttum þörfum á markaði. Með öðrum orðum, við erum í fararbroddi í því að bregðast við breyttri eftirspurn á erlendum mörkuðum. Við erum fljót að aðlaga okkur að breytingu á þörfum og fjölbreytileikinn á hvað stærstan þátt í því. Það verðum við að hafa í huga þegar við fórnum kannski einhverju öðru fyrir það að viðhalda fjölbreytileikanum og að koma í veg fyrir það að samþjöppunin verði of mikil.

Aðrar breytingar í frumvarpinu eru mjög jákvæðar og þá vitna ég til þess sem hæstv. ráðherra kom inn á sem við getum kallað staðgreiðslu veiðigjalda, þ.e. veiðigjöld séu greidd miðað við landaðan afla. Með öðrum orðum, við séum ekki eins og áður hefur verið að krefjast jafnvel fyrirframgreiðslu á veiðigjöldum, þ.e. menn eiga enn ónýttar aflaheimildir, hafa ekki náð að virðisauka þær en þurfa að standa skil á greiðslu veiðigjalda. Það er ekki síst mikilvægt fyrir minni og meðalstór fyrirtæki í greininni, sem hafa kannski ekki eins mikla fjármagnsveltu í starfsemi sinni og stærri fyrirtæki, að þurfa ekki að binda fé með þessum hætti. Þetta er svipað kerfi og við þekkjum úr virðisaukaskattskerfinu, þetta er þekkt innheimtuaðferð, hún er einföld og kallar ekki á neina yfirbyggingu eða umsjón. Þarna erum við að ganga inn í kerfi sem er þekkt og allt er til í gegnum þannig að ég fagna þessari breytingu. Ég held að hún sé mjög mikilvæg, ekki síst gagnvart þeim fjölbreytileika sem ég kom inn á.

Það verður ekki hjá því komist að velta því aðeins fyrir sér: Hvar á að reikna veiðigjöld? Við höfum verið að mínu mati með óttalegan bastarð í reikniformúlu okkar á undanförnum árum þar sem við höfum reynt að blanda saman afkomu af útgerð og veiðum og svo vinnsluhluta. Það varð niðurstaða í óformlegri vinnu sem átti sér stað á síðasta ári að framtíðarlausnin hlyti að vera sú að við reiknuðum alltaf veiðigjöld við skipshlið. Aðgangur að veiðum og þannig nýting á auðlindinni væri sem sagt grundvöllur veiðigjalda í framtíðinni. Við getum ekki verið að refsa þeim sem búa til mikil og aukin verðmæti í landi fyrir að gera það. Það er líka svo erfitt að draga línu í sandinn um hvar eigi að enda þá skattlagningu. Ætlum við að fara inn í fiskbúðirnar og leggja á fiskbúðirnar auðlindagjald eða aukaskatt? Þær fara á markað og kaupa fisk og vinna hann, flaka og selja í fiskbúðinni. Ég get tekið dæmi um fyrirtæki í Vestmannaeyjum sem sérhæfir sig í að framleiða kryddlegna síld fyrir Finnlandsmarkað. Þeir kaupa síldina af uppsjávarfyrirtæki í Vestmannaeyjum sem er að útflutningsverðmæti hjá því fyrirtæki upp á 200 millj. kr. Þarna vinna 15 manns og sama síldin er, eftir vinnu í þessu fyrirtæki, seld út til Finnlands fyrir um 500 millj. kr. Ætlum við að leggja veiðigjöld á þetta fyrirtæki? Forsvarsmaður þess sagði við mig: Ef það yrði gert færi ég einfaldlega með fyrirtækið til Finnlands og setti upp vinnsluna þar. Ég gæti alveg eins gert það. Ég fengi meira að segja ákveðnar ívilnanir ef ég gerði það. Þá yrði útflutningsverðmæti okkar bara 200 millj. kr. í stað 500. Svona eru dæmin mörg. Þegar við erum að fikta við að fara inn í vinnsluhlutann og verðmætasköpunina er erfitt að draga línu í sandinn og segja hvar eigi að stoppa, hvar ætlum við að hætta. Við gætum líka verið að hrekja aukna verðmætasköpun úr landi þar sem það væri hreinlega ódýrara og hagkvæmara fyrir fyrirtækin að koma framleiðslunni upp á erlendri grundu.

Ég tala nú orðið um þetta meira sem skatt en eitthvert auðlindagjald. Ég held að það sé almennt orðið viðurkennt að leitin að auðlindagjaldinu og þessari svokölluðu auðlindarentu hafi ekki gengið upp, þ.e. einhverri rentu sem þetta skilar umfram eðlilega vinnslu. Til þess er greinin allt of fjölbreytt, til þess er afkoman allt of mismunandi á milli ára og jafnvel innan árs. Við skulum bara viðurkenna að hér er um að ræða skattlagningu á greinina.

Þá komum við að spurningunni um samræmingu. Ég tel að hæstv. ráðherra hafi svarað því mjög vel áðan þegar var verið að fara yfir það hvernig við gætum viðhaldið fjölbreytileikanum. Rýra of há veiðigjöld afkomu minni og meðalstórra útgerða meðan stærri útgerðirnar geta borgað meira? Það þarf auðvitað að vera ákveðið jafnræði. Og eins og hæstv. ráðherra kom inn á þá höfum við séð í þeim gögnum sem hafa komið til atvinnuveganefndar um þetta mál á fyrri stigum að þetta getur verið mjög mismunandi innan ólíkra útgerðarforma. Það þarf að finna einhvern jöfnuð í þessu. Fulltrúar Landssambands smábátaeigenda halda því oft fram við okkur að þeir séu að veiða verðmætasta fiskinn og ég held að það geti verið mikið til í því. Þeir séu með hagkvæmasta útgerðarformið. Það er sjónarmið sem er haldið til haga og við þurfum að skoða það. En í grunninn er ég hlynntur því að við skoðum það með einmitt það sjónarmið í huga að fjölbreytileikinn er nauðsynlegur þáttur í okkar kerfi í svo mörgu tilliti. Þannig megum við ekki leggja á veiðigjöld sem raska mjög þeirri flóru sem við sjáum í greininni í dag.