aðkoma stjórnvalda að kjaradeilum.
Herra forseti. Ég deili áhyggjum með hv. þingmanni vegna þessarar stöðu en ég hygg að málið sé kannski ekki alveg jafn einfalt og hún lætur í veðri vaka. Í fyrsta lagi er það þannig með heilbrigðisstarfsmenn, þá sem eru innan vébanda BHM, að sú deila er komin til ríkissáttasemjara og þar er verið að stýra samningalotunni og á hans forræði að boða til funda eftir því sem aðstæður kalla á.
Það sem við ættum öll að vera mjög hugsi yfir í þessari stöðu er einkum tvennt. Í fyrsta lagi hefur sú breyting sem orðið hefur á beitingu verkfallsréttar í landinu leitt til þess að tiltölulega fámennir hópar geta nú, og þá vísa ég ekki síst í niðurstöðu félagsdóms fyrir stuttu, farið þá leið að fara í verkfall þar sem mest er fundið fyrir því. Nú er það orðið þannig, samkvæmt þessari nýjustu niðurstöðu, að menn geta jafnvel farið í verkfall á einstökum stofnunum. Það er mikið umhugsunarefni hvernig við höfum lent í því ítrekað á undanförnum mánuðum að grundvallarstoðir í heilbrigðiskerfi okkar eru nánast teknar í gíslingu til þess að ná fram kröfum í kjaraviðræðum. Með því hefur hinu hefðbundna verkfallsvopni verið beitt á nýjan hátt, þann hátt að það að fara í verkfall, sú ákvörðun, bitnar ekki jafnt á báðum aðilum eins og hefur verið fram til þessa. Þetta er annað atriðið.
Hitt er síðan þetta: Um hvað er í raun og veru deilt á Íslandi í þeim kjaraviðræðum sem nú standa yfir? Er kjarni deilunnar sá að það skorti á að gera betur við þá sem eru lægstlaunaðir, eða er það til vitnis um einhver önnur sjónarmið þegar stór félög á borð við BHM vilja meina að menntun sé ekki metin nægilega til launa og ganga nánast svo langt að segja að jöfnuður hafi aukist um of, svo mjög að það borgi sig ekki lengur, það skili sér ekki í launaumslagið, að sækja góða menntun (Forseti hringir.) t.d. með háskólagöngu? Þarna erum við komin að öðru stóru kjarnaatriði sem mætti gjarnan taka með í umræðuna þegar við ræðum um stöðuna á vinnumarkaði.