144. löggjafarþing — 91. fundur,  20. apr. 2015.

vitnað í orðaskipti á lokuðum nefndarfundi.

[15:37]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf):

Virðulegur forseti. Ég verð nú að segja að mér þykir þetta nokkuð sérstök yfirlýsing af hálfu formanns þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Það er auðvitað og hefur verið um árabil og áratugaskeið þannig að vitnað er til þess sem fram kemur á nefndarfundum Alþingis, skárra væri það nú, til þess eru þeir haldnir að það komi eitthvað fram sem maður getur síðan komið áfram í opinbera umræðu.

Það er svo rétt að það er ákvæði um að menn vitni ekki orðrétt innan tilvitnanamerkja til þess sem fram kemur á fundinum, að rætt sé við ákveðna menn. En hér er eðli máls algerlega augljóst og þingmönnum í sjálfsvald sett að vitna til þess hvað landlæknir hefur að segja um verkfall í íslenska heilbrigðiskerfinu. Skárra væri það nú, virðulegur forseti, ef það væri leyndarmál. En ég skil vel að þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins sé viðkvæmur fyrir því að það ástand sé rætt opinberlega, því að það er til algerrar skammar aðgerðaleysið í þessu máli.