vitnað í orðaskipti á lokuðum nefndarfundi.
Virðulegi forseti. Mér finnst nú svolítið sérkennilegt að ætla að fara að taka þetta mál upp á þann hátt sem hér er gert gagnvart hv. þm. Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur. Hún gerði ekki annað en koma með almenna athugasemd um eitthvað sem kom fram á fundi nefndarinnar þá um morguninn, sem var auglýst á dagskrá, gestir boðaðir o.s.frv.
Þessi ríkisstjórn hefur nokkrum sinnum sett lög á vinnudeilur. Undir þeim kringumstæðum höfum við vitnað beint í það sem fram hefur komið í samtölum við gesti í nefndarálitum. Þannig að auðvitað er unnið með það sem gestirnir koma með til okkar á auglýstri dagskrá, auglýstir gestir o.s.frv. Hins vegar er það, eins og fram hefur komið, afar óeðlilegt ef við stöndum hér og vitnum beint til orða okkar í millum eða orða einstakra gesta og ekki síst ef beðið er um trúnað sem var svo sannarlega ekki í þessu tilfelli. (Forseti hringir.) Þarna kom ekkert fram sem ég held að ekki hafi komið fram áður með einum eða öðrum hætti (Forseti hringir.) eða hefði ekki komið fram í kjölfar þessa fundar.