144. löggjafarþing — 93. fundur,  21. apr. 2015.

störf þingsins.

[13:50]
Horfa

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Enn ber flugvöllinn í Vatnsmýri á góma hér í þingsal og er það í raun ekki skrýtið. Hv. þm. Kristján L. Möller fór yfir samskipti frá árinu 2006, eða þar um bil, fram til dagsins í dag en láðist að geta þess að það var í tíð Reykjavíkurlistans sem almenn kosning fór fram um að kjósa flugvöllinn burt. Það er kannski fyrsta skrefið. En það breytir ekki því að jafnt að mati Kristjáns L. Möllers sem þeirrar sem hér stendur þá hefur ríkið ekki staðið sig í að verja í það minnsta sína hagsmuni og gera athugasemdir við aðalskipulag eða deiliskipulag með tilliti til flugvallarins. Þar hefur ríkið ekki staðið sig nægjanlega vel.

Það var hins vegar, virðulegur forseti, fagnaðarefni að lesa í einu dagblaðanna ekki alls fyrir löngu að forsvarsmaður Valsmanna ehf., Brynjar Harðarson, lét þess getið að ekki yrði haldið áfram með framkvæmdir á svæðinu við Hlíðarenda fyrr en að Rögnunefndin hefði lokið störfum. Ég held að þar komi það fyrirtæki fram til þess að rétta fram sáttarhönd, ég tel að það sé af hinu góða.

Upphrópanir í þessu máli eða öðrum málum færa okkur ekkert. Hins vegar þarf ríkið sem og borgaryfirvöld og Valsmenn ehf. að setjast niður, þegar Rögnunefndin hefur lokið störfum, og ljúka umræðunni um Reykjavíkurflugvöll og þá væntanlega í þágu meiri hagsmuna en minni.